Kitlandi frásögn um fortíðina.
Fyrirlestur á Landnámssýningunni Reykjavík 871±2  í Aðalastræti 16
þriðjudaginn 18. mars kl. 17.

Þriðjudaginn 18. mars kl 17 flytur Hjörleifur Stefánson arkitekt fyririlestur
í Aðalstræti 16. Hjörleifur var verkefnisstjóri við gerð Landnámssýningarinna
Reykjavík 871±2 . Þungamiðja sýningarinnar er vel varðveitt rúst af skála
frá 10. öld sem fannast við fornleifauppgröft í Aðalstræti 16 árið 2001.
Ákveðið var að forverja rústina, varðveita hana innan dyra og gera umhverfis
hana sýningu um lífið á landnámsöld. Við sýingargerðina var stuðst við
niðurstöður fræðimanna í fornleifafræði, sagnfræði og líffræði en til þess
að miðla fróðleiknum er notuð nýjasta margmiðlunartækni sem vekur fortíðina
til lífsins. Sýningin hefur hlotið einróma lof gesta, eldir sem yngri,
innlendra og erlendra. Hún hlaut íslensku safnaverðlaunin 2006 og NODEM
verðlaunin (Nordic Digital Excellence in Museums), sem veitt eru fyrir
bestu starfænu miðlun í söfnum.

Sýningin er nú tilnefnd til EMYA2008 verðlaunanna (European Museum of the
Year Award 2008) en þau verðlaun verða afhent í Dyflini í maí. Margmiðlunarefni
frá sýningunni má finna á vefsetrinu www.reykjavik871.is

Í fyrirlestri sínum mun Hjörleifur m.a. ræða um þá hugmyndafræði og þær
aðferðir sem beitt var við sýningargerðina til að skapa kitlandi frásögn
um fortíðina úr jarðfundnum fornleifum.

Sigurborg Hilmarsdóttir verkefnisstjóri

Landnámssýningunni  Reykjavík  871±2

Aðalstræti 16, 101 Reykjavík

Sími 4116370 / 6647370