[Gandur] Námskeið hjá Miðstöð munnlegrar sögu

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Wed Jun 4 08:41:59 GMT 2008


Kæru viðtakendur,

Laugardaginn 13. september býður Miðstöð munnlegrar sögu námskeið þar 
sem munnleg saga og helstu aðferðir hennar verða kynntar. Námskeiðið 
verður kennt í Þjóðarbókhlöðu og er fjöldi þáttakenda takmarkaður við 
tólf. Þátttökugjald er 10.000 kr en 7000 krónur fyrir námsmenn. 
Innifalið í verði eru kennslugögn og kaffiveitingar í hléi fyrir og 
eftir hádegi. Kennarar á námskeiðinu eru Gísli Sigurðsson, 
rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar, og Unnur María 
Bergsveinsdóttir, sagnfræðingur og verkefnastjóri Miðstöðvar munnlegrar 
sögu.

Dagskrá námskeiðsins er sem hér segir:

10.00-11.30 Hvað er munnleg saga?
Saga aðferðarinnar er rakin og sérkenni í hennar í samanburði við aðrar 
sagnfræðilegar aðferðir rædd. Vikið verður að notkun munnlegra heimilda 
innan annarra fræðigreina. Tæpt verður á helstu kenningum um minnið og 
staða munnlegrar sögu hérlendis kortlögð.

11.45-13.00 Undirbúningur viðtals og tækjabúnaður
Farið er yfir helstu atriði sem skipta máli þegar viðtal eða röð viðtala 
eru undirbúin. Leiðbeint verður um það hvernig best megi nálgast 
væntanlega viðmælendur. Tækjabúnaður og beiting hans kynnt.


14.00-15.30 Viðtalstækni
Hvað einkennir góðan spyril? Eftir hverju hlustar hann og hvernig? 
Þáttakendur spreyta sig á töku viðtals.


15.45-17.00 Eftir viðtalið
Úrvinnsla, frágangur og varðveisla viðtalsins verða rædd. Hvernig skal 
skrifa útdrátt úr viðtali, hvernig á að skrifa viðtalið upp og hvenær á 
hvor aðferðin við? Helstu forrit sem gagnast við úrvinnslu viðtala 
kynnt. Höfundaréttur og siðleg viðmið munnlegrar sögu skýrð.



Unnur María Bergsveinsdóttir veitir allar nánari upplýsingar og tekur 
við óskum um skráningu í síma 525-5776 eða í gegnum tölvupóst 
(unnurm at bok.hi.is). Athugið að í fyrra komust færri að en vildu. Sjá 
einnig á http://www.munnlegsaga.is


Kær kveðja,
Unnur María

----
Unnur María Bergsveinsdóttir, verkefnisstjóri
Miðstöð munnlegrar sögu
Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Arngrímsgötu 3
107 Reykjavík



sími: 525-5775
gsm: 691-0374
netfang: unnurm at bok.hi.is <mailto:unnurm at bok.hi.is>
vefsíða: www.munnlegsaga.is <http://www.munnlegsaga.is>
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080604/c3df28f0/attachment.html


More information about the Gandur mailing list