[Gandur] Ekki gleyma... Umgjörð dómsdagsmyndar - leiðsögn Guðrúnar Harðardóttur sagnfræðings 22. jan. kl. 12:05

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Mon Jan 21 13:18:38 GMT 2008


Umgjörð dómsdagsmyndar
Leiðsögn Guðrúnar Harðardóttur sagnfræðings
í Þjóðminjasafni Íslands þriðjudaginn 22. janúar klukkan 12:05
Næstkomandi þriðjudag, 22. janúar klukkan 12:05 verður Ausið úr 
viskubrunnum í Þjóðminjasafni Íslands. Guðrún Harðardóttir sérfræðingur í 
byggingasögu kynnir fyrir gestum hugmyndir fræðimannanna Selmu Jónsdóttur, 
Kristjáns Eldjárns og Harðar Ágústssonar um upphaflega staðsetningu 
dómsdagsmyndar Bjarnastaðahlíðarfjala. Einnig segir hún frá fyrstu 
dómkirkjunni á Hólum í Hjaltadal. 
Fjalirnar frá Bjarnastaðahlíð má sjá á sýningunni Á efsta degi - býsönsk 
dómsdagsmynd á Hólum sem nú stendur yfir í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Þar 
er sett fram endurgerð dómsdagmyndarinnar samkvæmt tilgátu Harðar 
Ágústssonar.
Guðrún mun gefa gestum innsýn inn í hvað liggur að baki tilgátunnar um að 
myndin hafi upphaflega verið í dómkirkju þeirri sem Jón biskup Ögmundsson 
lét reisa skömmu eftir að hann kom til stóls á Hólum árið 1106. Sagt er 
frá því í Jóns sögu að hann fór til Noregs í beinu framhaldi af 
vígsluförinni og aflaði sér þar kirkjuviðar. Allar líkur eru á að hann 
hafi lagt línurnar um gerð dómkirkjunnar en hann fékk Þórodd Gamlason ,,er 
þá þótti einhver hagastur vera“ til að smíða hana.
Þetta er áttunda sérfræðileiðsögnin í röðinni Ausið úr viskubrunnum í 
vetur en sérfræðileiðsagnir Þjóðminjasafnsins hafa notið mikilla vinsælda. 
 Fólk er hvatt til að fjölmenna.

Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080121/83cf6c57/attachment.html


More information about the Gandur mailing list