Umgjörð dómsdagsmyndar

Leiðsögn Guðrúnar Harðardóttur
sagnfræðings

í Þjóðminjasafni Íslands þriðjudaginn
22. janúar klukkan 12:05

Næstkomandi þriðjudag, 22. janúar
klukkan 12:05 verður Ausið
úr viskubrunnum í Þjóðminjasafni
Íslands. Guðrún Harðardóttir sérfræðingur í byggingasögu kynnir fyrir gestum
hugmyndir fræðimannanna Selmu Jónsdóttur, Kristjáns Eldjárns og Harðar
Ágústssonar um upphaflega staðsetningu dómsdagsmyndar Bjarnastaðahlíðarfjala.
Einnig segir hún frá fyrstu dómkirkjunni á Hólum í Hjaltadal.

Fjalirnar frá Bjarnastaðahlíð má
sjá á sýningunni Á
efsta degi - býsönsk dómsdagsmynd á Hólum
sem nú stendur yfir í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Þar er sett fram endurgerð
dómsdagmyndarinnar samkvæmt tilgátu Harðar Ágústssonar.

Guðrún mun gefa gestum innsýn inn
í hvað liggur að baki tilgátunnar um að myndin hafi upphaflega verið í
dómkirkju þeirri sem Jón biskup Ögmundsson lét reisa skömmu eftir að hann
kom til stóls á Hólum árið 1106. Sagt er frá því í Jóns sögu að hann fór
til Noregs í beinu framhaldi af vígsluförinni og aflaði sér þar kirkjuviðar.
Allar líkur eru á að hann hafi lagt línurnar um gerð dómkirkjunnar en hann
fékk Þórodd Gamlason ,,er þá þótti einhver hagastur vera“ til að smíða
hana.

Þetta er áttunda sérfræðileiðsögnin
í röðinni Ausið úr viskubrunnum í vetur en sérfræðileiðsagnir Þjóðminjasafnsins
hafa notið mikilla vinsælda. Fólk er hvatt til að fjölmenna.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is