[Gandur] Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags Íslands - þriðjudaginn 15. janúar

Unnur María. Bergsveinsdóttir unnurm at bok.hi.is
Fri Jan 11 16:26:40 GMT 2008


Kæru viðtakendur, 

 

Fyrsti hádegisfundur Sagnfræðingafélags Íslands á nýju ári fer fram þriðjudaginn 15. janúar næstkomandi. Venju samkvæmt verður hann kl. 12:05-12:55 í fyrirlestrasal Þjóminjasafns Íslands. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fyrirlesari að þessu sinni er Hrafn Sveinbjarnarson sagnfræðingur og mun hann ræða um varðveislu íslenskra skjalasafna. Erindi hans ber heitið ,,Syndaflóðið kemur eftir vorn dag". Frekari upplýsingar um fyrirlesturinn, sem og komandi fyrirlestra, má finna á heimasíðu félagsins, www.sagnfraedingafelag.net. 

 

 

Syndaflóðið kemur eftir vorn dag - um varðveislu íslenskra skjalasafna. Útdráttur úr fyrirlestri:

Skjalasöfn endurspegla það þjóðskipulag og stjórnkerfi sem ríkir á hverjum tíma. Rétt meðferð og örugg varðveisla skjala í stjórnsýslu og hjá skjalavörslustofnunum í borgaralegu þjóðfélagi er grundvöllur réttarríkis, borgaralegra réttinda og forsenda öflugra  sagnfræðirannsókna. Án skipulegrar og öflugrar opinberrar skjalavörslu eru upplýsingalög og stjórnsýslulög til lítils. Varðveisla íslenskra skjalasafna er háð því að faglega sé að henni staðið. Öflugt Þjóðskjalasafn sem hefur á að skipa skjalavörðum menntuðum í sagnfræði með formlega viðbótarmenntun í skjalfræðum  er frumforsenda þess. Umfjöllunarefni fyrirlestrarins verður varsla opinberra skjalasafna og einkaskjalasafna á Íslandi og nokkur vandamál hennar t.d. óraunhæfar hugmyndir um tölvutækni og skjalasöfn, eyðilegging skjalasafna vegna skilningsleysis á heild þeirra og innra skipulagi og gáleysisleg og ólögleg grisjun skjala.

 

Með kærri kveðju,

Unnur María

 

----

Unnur María Bergsveinsdóttir, verkefnisstjóri

Miðstöð munnlegrar sögu

Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Arngrímsgötu 3
107 Reykjavík

 

sími: 525-5775
gsm: 691-0374
netfang: unnurm at bok.hi.is <mailto:unnurm at bok.hi.is> 
vefsíða: www.munnlegsaga.is <http://www.munnlegsaga.is> 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080111/2c747b62/attachment.html


More information about the Gandur mailing list