[Gandur] Viðburðadagskrá sjf

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Feb 19 09:04:48 GMT 2008


                                                                         
                                                                         
                                                                         
      Séð úr Þjófagjá í Þorbirni  til Grindavíkur. Mynd ÓSÁ

Kynning á viðburða- og menningardagskrá Saltfisksetursins og  
Grindavíkurbæjar 2008, verður í Saltfisksetrinu í Grindavík,  
laugardaginn 23. febrúar, frá kl. 17-19. Óskar Sævarsson,  
forstöðumaður Saltfisksetursins og Sigrún Jónsd. Franklín,  
verkefnastjóri kynna viðburða- og menningardagskrá Grindavíkur og  
Saltfisksetursins.

Í boði verða ýmsir  menningarviðburðir á árinu s.s.:  
þjóðháttakynningar, menningar- og sögutengdar göngur, fræðslukvöld,  
listviðburðir, tónleikar, auk hefðbundinna dagskrárliða, Sjóarans  
síkáta, Jónsmessugöngu á Þorbjörn o.m.fl. menningarlegt. Sjá má  
dagskrá á heimsíðu Grindavíkur, www.grindavik.is Sigrún mun jafnframt  
kynna gönguverkefnið „Af stað á Reykjanesið“, kynning á gömlum  
þjóðleiðum, þjóðleiðarbæklingum, skipulögðum ferðum með leiðsögn og  
gönguhátíð um verslunarmannahelgina.

Gerð þjóðleiðarbæklinga var einstaklingsverkefni Sigrúnar, í hagnýtri  
menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Ferðamálasamtök Suðurnesja gefa  
þá út. Lokaverkefni hennar í náminu var ritið Sagnaslóðir á  
Reykjanesi I, sem kom út s.l. sumar. Sigrún útskrifast þennan dag með  
MA í hagnýtri menningarmiðlun og af því tilefni býður hún einnig alla  
hjartanlega velkomna í Saltfisksetrið. sjf menningarmiðlun,  
sjf at internet.is











More information about the Gandur mailing list