[Gandur] Ljáðu þeim eyra fimmtudagskvöldið 4. desember klukkan 20

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Wed Dec 3 12:46:10 GMT 2008


*Ljáðu þeim eyra*

*4. samræðusamkoma Súfistans og ReykjavíkurAkademíunnar

*

/Þegar öllu er á botninn hvolft.../

Á öllum öldum hafa verið til skáld og hugsjónamenn sem hafa fordæmt 
spillta valdhafa og ódyggðir. Menn hafa verið sammála um að óhóf, 
ójöfnuður og ágirnd leiði til ills...

/    "Græðgin er eimreiðin sem dregur líf okkar inn í bjartari framtíð"/ 
sagði ungur greinahöfundur í Fréttablaðinu fyrir nokkrum árum og bætir 
við /                    "græðgisvæðing íslensks samfélags er vonandi 
komin til að vera, og vonandi eykst hún dag frá degi um ókomna framtíð, 
fyrir sakir okkar allra"/

Svona hefur fagnaðarerindi dólgatrúboðsins hljómað og vísast hefur 
mörgum auðkýfingum og athafnamönnum þótt slíkur boðskapur láta betur í 
eyrum en naggið um fjandsamlega ágirnd og djöfullegan ójöfnuð. En nú um 
stundir er talað um réttlæti, jöfnuð og samfélagslegar hugsjónir sem 
aldrei fyrr svo líklega hefur þjóðin vaknað við vondan draum.


Á hverju fimmtudagskvöldi fram að jólum verður samræðusamkoma undir 
heitinu *Ljáðu þeim eyra* klukkan 20 í Súfistanum. Þar munu tveir 
höfundar kynna bækur sínar og einn framsögumaður frá 
ReykjavíkurAkademíunni spjalla um þema sem tengist bókunum út frá sínum 
sjónarhóli. Tónlist verður í umsjá Hjörleifs Valssonar fiðluleikara. 
Síðan verða almennar samræður og gestir hvattir til að leggja orð í belg.

 

*Fjórða samræðustundin verður fimmtudagskvöldið 4. desember kl. 20 *og* 
*hefst með stuttu erindi* Auðar Ingvarsdóttur* sagnfræðings um hugsjónir 
og trú í /Njálu/ . Síðan kynna tveir höfundar verk sín:

*Árni Bergmann/: /*/Glíman við Guð.///

*Guðmundur Magnússon/: /*/Nýja Ísland. Listin að týna sjálfum sér/

/ /

/Á eftir framsögu og bókakynningum verða samræður fram eftir kvöldi.
/



*The Reykjavik Academy*

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is <mailto:ra at akademia.is>
Veffang/website: www.akademia.is <http://www.akademia.is>

-------------- next part --------------
Skipped content of type multipart/related


More information about the Gandur mailing list