[Gandur] Reykjavíkursögur á menningarnótt

Unnur María. Bergsveinsdóttir unnurm at bok.hi.is
Wed Aug 20 13:50:07 GMT 2008


Reykjavíkursögur - eftirminnilegar stundir

 

Komdu og segðu okkur frá eftirminnilegum stundum í borginni! Skautaðir þú á Tjörninni eða í Skautahöllinni? Heimsóttir þú Listamannaskálann eða gekkstu á sunnudögum um Hallargarðinn? Manstu spilasalinn í Hafnarstræti eða tónleikamaraþon Tónabæjar? Dansaðir þú á Borginni eða í Hollywood eða gekkstu kannski Hallærisplanið? Heimsækir þú listasöfnin og Kolaportið? Býrðu þig í betri fötin á sunnudögum? 

 

Á menningarnótt býður Miðstöð munnlegrar sögu borgarbörnum, ungum jafnt sem öldnum, að tylla sér inn í hljóðver miðstöðvarinnar og segja frá eftirminnilegum stundum í borginni. Hljóðver Miðstöðvarinnar verður að finna í litlu vinalegu garðhúsi á horni Aðalstrætis og Túngötu, við inngang Landnámssýningarinnar.  Allir sem heimsækja hljóðverið fá afrit af eigin upptöku á geisladiski. Hljóðverið er opið á milli 12 og 18. 

 

Söfnunarátakið Borgarbörn er hluti af stærra verkefni sem nefnist Reykjavíkursögur. Markmiðið er að safna, varðveita og miðla Reykjavíkursögum frá ólíkum tímum. Á árinu 2008 verður athyglinni beint að frístundum sem mótast af borgarumhverfinu. Frásagnirnar og viðtölin verða tekin upp og geymdar í safni Miðstöðvar munnlegrar sögu. Þær verða nýttar til að byggja upp sérstakan vef Reykjavíkursagna þar sem verður hægt að hlusta á frásagnir og fræðast í máli og myndum um lífið í Reykjavík á ýmsum tímum. 

 

Miðstöð munnlegrar sögu er safn og rannsókna- og fræðslustofnun á sviði munnlegrar sögu með aðsetur í Þjóðarbókhlöðu. Hlutverk hennar er að safna munnlegum heimildum um sögu landsmanna, miðla þeim og varðveita til frambúðar. Vefsíðu Miðstöðvarinnar er að finna á http://www.munnlegsaga.is 

 

Styrktaraðilar Reykjavíkursagna eru Reykjavíkurborg, Ikea og Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Nánari upplýsingar gefur Unnur María Bergsveinsdóttir, verkefnastjóri Miðstöðvar munnlegrar sögu í síma 525-5776 og 691 0374 og í gegnum netfangið munnlegsaga at munnlegsaga.is

 

 

 

Kær kveðja,

Unnur María

 

----

Unnur María Bergsveinsdóttir, verkefnisstjóri

Miðstöð munnlegrar sögu

Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Arngrímsgötu 3
107 Reykjavík

 

sími: 525-5775
gsm: 691-0374
netfang: unnurm at bok.hi.is <mailto:unnurm at bok.hi.is> 
vefsíða: www.munnlegsaga.is <http://www.munnlegsaga.is> 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080820/39b77b4d/attachment.html


More information about the Gandur mailing list