[Gandur] Af stað 3

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Aug 12 08:25:21 GMT 2008


AF STAÐ á Reykjanesið  3. ferð – Garðstígur-gömul þjóðleið

Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 17. ágúst kl. 11 í boði
Sveitarfélagsins Garðs í samvinnu við sjf menningarmiðlun.

Gangan hefst við stóra skiltið við innkomuna í Garð, við Garðbraut.  
Gengið
verður að Hólmsbergskirkjugarði. Garðstígur er gömul þjóðleið, um 6,5  
km á
milli Keflavíkur og Garðs. Svæðið býr yfir minjum, mögnuðum sögum og
fróðleik sem Sigrún Jónsd. Franklín mun miðla á leiðinni. Áætlað er að
gangan taki  ca. 3-4 klst. með stoppum. Gott er að vera með nesti og í
góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð. Rútuferð til baka kr. 500. Frítt
fyrir börn.

Gangan er þriðji hluti af sex menningar- og sögutengdum gönguferðum um
hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar eru á
tímabilinu 1.ágúst – 7. sept. ´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem
göngufólk safnar stimplum fyrir ferð í hverju sveitarfélagi. Þegar búið
verður að fara 3 - 6 ferðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír
heppnir fá góð gönguverðlaun. Dregið verður í sjöttu ferð. Göngufólk er
beðið um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir.

Umsjónarmaður gönguverkefnis
AF STAÐ á Reykjanesið
Sigrún Jónsd. Franklín
sjf at internet.is/6918828
www.sjfmenningarmidlun.is








More information about the Gandur mailing list