[Gandur] AF STAÐ

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Fri Aug 1 08:30:55 GMT 2008


AF STAÐ á Reykjanesið
Menningar- og sögutengdar gönguferðir í ágúst og september.

Þriðja sumarið í röð er boðið upp á menningar- og sögutengdar  
gönguferðir
með leiðsögn í sveitarfélögum á Reykjanesskaganum.
Ferðirnar hefjast um verslunarmannahelgina en þá verður gönguhátíð í
Grindavík. Ferðir  2, 5 og 6 koma í lok hátíða hjá sveitarfélögum þ.e.:
Fjölskylduhátíðar í Vogum,  Sandgerðisdaga og Ljósanætur í Reykjanesbæ.
Göngufólki er bent á að skoða heimasíður sveitarfélaga, þar sem
tjaldsvæði, veitingar, sund og önnur þjónusta  er kynnt.

Ferðir í ágúst og sept.a
1. Gönguhátíð í Grindavík um verslunarmannahelgina 1. – 4. ágúst.–   
Boðið
verður upp á fjórar göngur frá föstudegi – mánudags. Sjá nánari
upplýsingar á  www.grindavik.is

2. Mæting við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd,  sunnudaginn 10.
ágúst , kl 11. Gengin gömul þjóðleið, Almenningsvegur að Kúagerði um.  
6 km
www.vogar.is

3. Mæting við stóra skiltið við innkomuna í Garð við Garðveg.  
sunnudaginn
17. ágúst,  kl 11. Gengin gömul þjóðleið, Garðstígur að
Hólmsbergskirkjugarði,  7,5 km
www.sv-gardur.is

4. Mæting við slysavarnarskýlið á Bláfjallaleið, sunnudaginn 24. ágúst,
kl. 11. Gengin gömul þjóðleið, Selvogsgata frá Grindarskörðum að
Hlíðarvatni í Selvog um 18 km 6-7 tímar. Þátttökugjald kr. 2000.
www.sjfmenningarmidlun.is

5. Mæting við sundlaugina í Sandgerði – sunnudaginn 31. ágúst,  kl 11.
Gengin gömul þjóðleið, Sandgerðisvegur að Keflavíkurborg, gömul  
fjárborg,
8 km www.sandgerdi.is

6. Mæting við Duushús í Reykjanesbæ. sunnudaginn 7. september, kl 11.
Gengið frá Melabergi gömul þjóðleið, Hvalsnesvegur að Grófinni í  
Keflavík,
6,5 km
www.reykjanesbaer.is

Göngurnar taka um 3-4 tíma með fræðslustoppum nema annað sé tekið fram.
Gott er að vera með nesti og  í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð í
ferðum. Boðið verður upp á  þátttökuseðil þar sem stimplað verður fyrir
ferð í hverju sveitarfélagi. Eftir 3-6 ferðir, verður dregið úr
þátttökuseðlum og einhverjir þrír heppnir fá verðlaun við hæfi  
göngufólks.
Dregið verður í Hvalsnesgöngu. Ferðirnar eru yfirleitt í boði viðkomandi
sveitarfélags og því ekkert þátttökugjald nema annað sé tekið fram.
Rútugjald er kr. 500. Frítt fyrir börn. Þátttakendur mæta á upphafsstað
göngu og rúta sækir eða skilar fólki.
Leiðsögumennirnir Ómar Smári Ármannsson og Sigrún Jónsd. Franklín verða
með menningar- og sögutengdan fróðleik í ferðum.
Hver ferð verður kynnt nánar þegar nær dregur og eins ef um breytingar  
er
að ræða þá má sjá það á www.sjfmenningarmidlun.is og á heimasíðum
sveitarfélaga.
Umsjónarmaður gönguverkefnis, AF STAÐ á Reykjanesið, Sigrún Jónsd.
Franklín, sjf menningarmiðlun, gsm 6918828/sjf at internet.is








More information about the Gandur mailing list