[Gandur] Gangið hægt um gleðinnar dyr

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Tue Apr 22 12:44:50 GMT 2008


Síðasta rannsóknarkvöld vetrarins á vegum Félags íslenskra fræða  
verður haldið nk. fimmtudag, 24. apríl (sumardaginn fyrsta), eins og  
áður í húsi Sögufélagsins, Fischersundi 3, kl. 20.00.

Þá flytur dr. Aðalheiður Guðmundsdóttir erindi sem hún nefnir:
„Gangið hægt um gleðinnar dyr“ – Um skemmtanasiði Íslendinga fyrr á  
öldum í tilefni af nýútkominni danssögu Norðurlanda, Norden i Dans.

Í fyrirlestrinum verður rakin saga dans og dansleika (þ.e. hinnar  
svokölluðu gleði) á Íslandi allt frá 12. öld til 18. aldar. Rætt  
verður um viðhorf yfirvaldsins til skemmtanalífs landsmanna og þær  
aðgerðir sem beint var gegn samkomunum. Hingað til höfum við leitað  
heimilda um viðhorf til gleðinnar í opinberum skrifum menntamanna og í  
umkvörtunum andlegra yfirvalda sem gagnrýndu þátttakendur dansleikanna  
fyrir siðleysi. En hvað hefur alþýðan sjálf um málið að segja? Í  
fyrirlestrinum verður lögð áhersla á raddir þeirra sem sjálfir tóku  
þátt í dansleikum og tjáðu sig um þá í danskvæðum - einkum  
vikivakakvæðum, sem flutt voru við vikivakadans, leikkvæðum og  
dansþulum. Samkvæmt því sem þar kemur fram höfðu þeir sem kvörtuðu  
undan frjálslegu háttalagi dansfólksins nokkuð til síns máls, enda  
snúast kvæðin mjög um samdrátt kynjanna og jafnvel lauslæti. Sagt  
verður frá ódönnuðum dansdömum, drykkjuskap, kossum og fleiru sem ber  
á góma í kveðskap dansfólksins.

Aðalheiður Guðmundsdóttir er rannsóknarstöðustyrkþegi við Stofnun Árna  
Magnússonar í íslenskum fræðum og stundakennari við Háskóla Íslands.

Aðgangur að rannsóknarkvöldum Félags íslenskra fræða er ókeypis og  
öllum heimill.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080422/900cacb4/attachment.html


More information about the Gandur mailing list