[Gandur] Sagnakvöld á sumardaginn fyrsta

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Apr 22 08:42:33 GMT 2008


Sagnakvöld í Fræðasetrinu í Sandgerði

Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 24. apríl kl. 20-22 verður sagnakvöld  
í Fræðasetrinu í Sandgerði  í boði Sandgerðisbæjar, Fræðasetursins og  
sjf menningarmiðlunar.

Síðasti geirfuglinn. Reynir Sveinsson, forstöðumaður Fræðasetursins  
mun segja sögur af síðasta geirfuglinum, sem var felldur við  
Geirfuglasker árið 1844 og öðrum nágrönnum hans, eins og skarfa og súlu.

Hvalaskoðun. Helga Ingimundardóttir, leiðsögumaður er þekkt m.a. fyrir  
hvalaskoðunarferðir sínar en hún hefur rekið hvalaskoðunarfyrirtækið,  
Moby Dick í mörg ár. Hún mun segja frá starfseminni, hvölum og ýmsu  
öðru sem  hún hefur kynnst í ferðum sínum.

Sáðmenn sandanna.  Friðrik G. Olgeirsson, sagnfræðingur tók saman efni  
í bókina, Sáðmenn sandanna á aldarafmæli landgræðslu árið 2007.  
Friðrik mun segja frá hvernig Íslendingar sneru vörn í sókn, stöðvuðu  
uppblástur á verstu foksvæðunum, björguðu byggðum og klæddu landið  
fögrum litum gróðurs á ný en Sandgerði var ein af þeim byggðum.

Á milli atriða verður fjöldasöngur og heitt á könnunni. Tilvalið er að  
taka með sér vinkonur og vini og skella sér á sagnakvöld og njóta  
menningararfleiðar.

Bókin, Sagnaslóðir á Reykjanesi I sem byggir á efni fyrri sagnakvölda  
verður á sérstöku tilboðsverði þetta kvöld.
  HYPERLINK "http://www.sjfmenningarmidlun.is" www.sjfmenningarmidlun.is

Bestu kveðjur
Sigrún Jónsd. Franklín
verkefnastjóri
gsm 6918828

www.sjfmenningarmidlun.is
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name:  Sagnakv?ld ? Fr??asetrinu ? Sandger?1-.doc    
Type: application/octet-stream
Size: 25600 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080422/b2a5becd/SagnakvldFrasetrinuSandger1--0001.obj
-------------- next part --------------










More information about the Gandur mailing list