[Gandur] Staðarhverfi

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Apr 15 09:00:04 GMT 2008


Menningar- og sögutengd ganga um Staðarhverfi, sögusvið verslunar,  
kirkjustaðar og útgerðar í Grindavík.

Menningar- og sögutengd ganga í boði Grindavíkurbæjar og  
Saltfiskssetursins verður laugardaginn 19. apríl og hefst kl. 11:00.  
Gangan hefst ofan við kirkjugarð Grindvíkinga með vígslu á fjórða  
söguskiltinu sem sett er upp í Grindavík og nú í Staðarhverfi sem eitt  
sinn var talið vera fjölmennast af hverfunum í Grindavík.

Gengið verður að Stað, um Sandskörð, að Hvirflum og með ströndinni  
yfir að Stóragerði, Kvíadal og Krukku. Kirkja var á Stað frá 13.öld. Í  
Staðarhverfi var konungsverslun á 18. öld. Mannfólk í í Staðarhverfi  
hefur verið um aldir mikilla sæva. Í dag er enginn íbúi skráður í  
Staðarhverfi en þar má sjá tóftir tveggja lögbýla og 26 hjáleiga frá  
mismunandi tímum. Ýmislegt verður skoðað sem  fyrir augu ber á  
leiðinni. Leiðsögumenn sjá um fræðsluna. Reynt verður að gera gönguna  
bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Í lok göngu  
verður heitt á könnunni og börn geta skoðað kindurnar á Stað. Gangan  
tekur rúman  klukkutíma með fræðslustoppum. Gengið er í grasi að mestu  
og því er gott að vera í góðum skó.


www.sjfmenningarmidlun.is

www.grindavik.is

-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Menningar- og  s?gutengd ganga ? Sta?arhverfi -.doc  
Type: application/octet-stream
Size: 25088 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080415/a88cc678/Menningar-ogsgutengdgangaStaarhverfi--0001.obj
-------------- next part --------------










More information about the Gandur mailing list