[Gandur] Miðvikudagsseminar Reykjavíkurakademíunnar 17. október

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Mon Oct 15 09:49:03 GMT 2007


*Miðvikudagsseminar Reykjavíkurakademíunnar 17. okt.

* Á Miðvikudagsseminari RA, í hádeginu 17. október n.k. munu Þorsteinn 
Antonsson og María Anna Þorsteinsdóttir kynna bókina  Fyrstu sögur  sem 
hefur að geyma útgáfu þeirra á sögum frá 18. og 19 öld. *
*

Seminarið hefst kl. 12.05 - allir velkomnir.
*
*

Út er/ /komin/ Víðferlissaga / Eiríks Björnssonar. Höfundur greinir frá 
ferðum sínum til Indlands og Kína á árunum næstu fyrir 1770. Einnig er 
komin út frá sama tíma/ Sagan af Níels eldra og Níels yngra,/ 
sjóferðarævintýri til hins fjarlæga lands Frýgíu. Einnig /Sagan af Árna 
ljúflingi yngra/ eftir Jón Espólín, frá því um 1830, ein af fyrstu 
skáldsögunum eftir Íslending. Svo og frá níunda áratug 19. aldar 
skáldsaga Skúla Bergþórssonar um /Eirík Loftsson og Jón Geirmundarson/. 
Enginn nefndra sagna hefur komið út áður. Ofannefndar sögur eru allar 
gefnar út saman í bók undir heitinu /Fyrstu sögur. /Umsjónarmenn 
útgáfunnar eru Þorsteinn Antonsson og María Anna Þorsteinsdóttir, hinir 
sömu og gáfu Ólandssögu Eiríks Laxdals út fyrr á árinu. Í bókarlok er 
ritgerð Ólafs Davíðssonar þjóðsagnasafnara og fræðimanns, /Bókmenntir 
kvenna, /frá því um 1880, gamansöm og nútímaleg frásögn af framlagi 
kvenna til heimsbókmenntanna fram á tíð höfundarins. Ritgerð Ólafs hefur 
til þessa verið allsendis óþekkt.

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20071015/6bc04ac8/attachment.html


More information about the Gandur mailing list