[Gandur] Þjóðminjasafnið auglýsir laust starf sviðstjóra rannsókna- og varðveislusviðs

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue May 15 17:30:26 GMT 2007


Þjóðminjasafnið auglýsir laust starf sviðstjóra rannsókna- og 
varðveislusviðs 

Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun og höfuðsafn á sviði 
þjóðminjavörslu og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. 
Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku 
þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á grundvelli safnalaga nr. 
106/2001, þjóðminjalaga nr. 107/2001 og reglugerðar nr. 896/2006. 

Þjóðminjasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf sviðstjóra 
rannsókna- og varðveislusviðs. 
Helstu verkefni sviðsins eru að safna, skrásetja, forverja, varðveita og 
rannsaka minjar, svo sem forngripi, kirkjugripi, listmuni, nytjahluti, 
sögulegar byggingar, myndir, hljóðritanir og skráðar heimildir um 
þjóðhætti. Bóka- og heimildasafn stofnunarinnar heyrir undir sviðið. 

Ábyrgð og verksvið:
Fagleg ábyrgð á starfsemi sviðs og dagleg verkstjórn. Mótun rannsóknar- og 
varðveislustefnu. Ábyrgð á að áherslur og forgangsröðun verkefna samrýmist 
stefnu Þjóðminjasafns Íslands og fjárhagsramma sviðs. Samskipti við 
ráðuneyti, stofnanir, rannsóknarsjóði og samstarfsaðila. 

Menntunar- og hæfniskröfur:
M.A. próf á sviði menningarsögu og/eða skyldum greinum áskilið, 
doktorspróf æskilegt.
Reynsla af rannsóknum, rannsóknasamstarfi og öflun innlendra og erlendra 
styrkja.
Stjórnunarreynsla og færni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð.
Reynsla af safnastarfi, minjavörslu og útgáfustarfi æskileg.
Færni í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli, jafnt töluðu sem rituðu 
máli. 

Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 
sem fyrst. Við ráðningar í störf er tekið mið að jafnréttisáætlun 
stofnunarinnar. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi viðkomandi 
stéttarfélags og fjármálaráðherra. 

Umsókn með ferilskrá sendist Þjóðminjasafni Íslands, Suðurgötu 43, 101 
Reykjavík eigi síðar en 4. júní 2007. Upplýsingar veitir Margrét 
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður (margret at thjodminjasafn.is) í síma 
530-2200. 

Starfsmaður taki þátt í því að Þjóðminjasafn Íslands nái markmiðum sínum 
sem vísinda- og þjónustustofnun. Starfsmaður leggi áherslu á góða þjónustu 
og ráðgjöf, fagleg og ábyrg vinnubrögð og jákvætt skapandi andrúmsloft á 
vinnustað. 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070515/cdbb5657/attachment.html


More information about the Gandur mailing list