[Gandur] Fatnaður frá þjóðveldistímanum og fleira spennandi

Adalheidur Gudmundsdóttir adalh at hi.is
Tue May 8 21:20:28 GMT 2007


Fjör í Flóanum
24- 27 júní (Hvítasunnuhelgi) Ullarvinnslan Þingborg í gamla  
samkomuhúsinu við þjóðveg 1 í miðjum Flóanum.

Alla helgina verður opið frá 13 til 18. Nú stendur yfir sýning á  
færeyskum ullarvörum sem Þingborgarkonur keyptu í ferð kirkjukórs  
Hraungerðis þangað. Langþráðarkeppnin er haldin eins og í fyrra og  
metið er nú 41.66 metrar úr 2 grömmum af ull.
Fimmtudag er árlegur ókeypis skiptimarkaður á vorplöntum – hægt er að  
koma með yfirfljótanlegar sáðplöntur, stiklinga eða blómkekki og fá  
eitthvað annað í staðinn. Kynningarpakkar á lífrænu grænmeti frá Akri  
verða til sölu og áskriftarþjónusta þeirra kynnt.
Föstudag verður umræðuhópur frá kl 16-18, í áframhaldi sögunnar af  
Skotmannshól í fyrra, og reifað hvernig þau Hildur og Örn í Vælugerði  
hafi verið klædd. Jörmundur Reykjavíkurgoði og áhugafólk um klæðnað á  
víkingatímanum mæta. Almenningi er gefinn kostur á að koma og  
fylgjast með umræðunum.

Hildur Hákonardóttir (símar 482 2190 - 849 8467)

Sigurjón Jóhannsson leikmyndateiknari og Sigrún Shanko sem vinnur að  
búningagerð fyrir Njálusetrið verða meðal gesta. ÞIngborgarkonur hafa  
tengt sig Skotmannshól og þeim atburðum sem gerðust í Flóanum og  
segir frá í Landnámu og Flóamannasögu og fengið bændur til að segja  
fram munnmælasögur af víginu. I fyrra fylgdum við eftir hinu fræga  
bogskoti og Bergsteinn Gissurarson skaut af langboga sínum af hólnum.  
Í ár snúum við okkur að klæðnaðinum. 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070508/e2b7b503/attachment.html


More information about the Gandur mailing list