[Gandur] Kviksaga Í KVÖLD: Verk í vinnslu
Kristinn Schram
kristinn at akademia.is
Sun May 6 14:55:53 GMT 2007
KVIKSAGA, í samstarfi við Fjalaköttinn, kynnir Verk í vinnslu.
Í kvöld, sunnudaginn 6. maí klukkan 20:00, verður í Tjarnarbíói sýnt
úr heimildamyndum og öðrum kvikmyndaverkum sem eru í vinnslu. Sagt
verður frá gerð þeirra og næstu skrefum í framleiðslu auk þess sem
fjórir valinkunnir kvikmyndaleikstjórar munu taka þátt í
pallborðsumræðu um verkin. Í pallborðinu munu sitja: Anna Th.
Rögnvaldsdóttir, Ásdís Thoroddsen, Elísabet Ronaldsdóttir og Helga
Brekkan.
Verkin sem sýnd verða eru: "Norðvestur" eftir Einar Þór , "Viðfangið
litla a" eftir Önnu Björk Einarsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur
og "Óshlíð" eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson.
Kvöldið hefst hins vegar á mynd- og tónlistarverki Hallvarðar
Ásgeirssonar og Tamar Singer "I'm too crowded".
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!
-----------
Nánar um Verk í vinnslu:
NORÐVESTUR, eftir Einar Þór.
Þessi heimildamynd fjallar um lífið á Vestfjörðum siðustu þrjátíu ár
og breytingar sem hafa orðið í byggðarlaginu meðal annars vegna
náttúruhamfara á Súðavík og Flateyri. Stuðst er við 8mm kvikmyndaefni
heimamanna.
Einar Þór er kvikmyndagerðarmaður en eftir hann liggja m.a. myndirnar
"Þriðja nafnið" og "Leitarhundar (a Dogumentary)".
Nánar um myndirnar á www.passportmotionpictures.com og www.kviksaga.is
ÓSHLÍÐ. Hryllingsverk eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson.
Í þessari mynd er gerð tilraun til þess að fanga óhug sem slegið
hefur fjölmarga sem hafa ekið um Óshlíðina. Óhugurinn ræðst af
yfirvofandi lífshættum sem liggja í dvala í sundursprungnu fjallinu
fyrir ofan veginn. Sigurjón Baldur Hafsteinsson er mannfræðingur og
hefur gert kvikmyndir á borð við Corpus Camera sem tilnefnd var til
Edduverðlauna árið 1999 í flokki heimildamynda.
VIÐFANGIÐ LITLA A, eftir Önnu Björk Einarsdóttur og Steinunni
Gunnlaugsdóttur.
Þessi fyrsta mynd leikstjóranna lýsir lífi og umhverfi
samtímamyndlistarkonu.
Anna Björk Einarsdóttir nemur bókmenntafræði og Steinunn
Gunnlaugsdóttir er myndlistarnemi.
Nánar á www.kviksaga.is
-----------
Um Kviksögu og Kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn
Kviksaga er miðstöð kvikmynda og fræða. Kviksaga er vettvangur þar
sem fræði og kvikmyndir mætast t.d. við gerð heimildamynda,
vídeólistar, kennsluefnis eða sjónrænna rannsókna á menningu og
samfélagi. Kviksaga stuðlar einnig að samræðum og rannsóknum á
kvikmyndaforminu og er grundvöllur fyrir áhugasama til að mætast,
ræða og vinna saman. Á síðastliðnu ári hefur Kviksaga efnt til
sýninga ásamt fræðilegri umfjöllun, haldið námskeið og staðið að
kvikmyndahátíð. Á vefriti Kviksögu www.kviksaga.is er að finna
ritstýrðar greinar, viðtöl, tilkynningar og myndbrot á sviði fræða og
kvikmynda. Skrifstofa Kviksögu í ReykjavíkurAkademíunni er öllum opin
til skrafs og ráðagerða, afnota myndefnis og tengslanets
miðstöðvarinnar.
Kvikmyndaklúbburinn Fjalakötturinn er nýr vettvangur fyrir
kvikmyndasýningar á Íslandi. Klúbburinn á heimili sitt í hinu
sögufræga Tjarnarbíói og hefur það að markmiði að stórauka
kvikmyndaúrval hér á landi með því að bjóða upp á sýningar á annars
konar myndum en hefur tíðkast í bíóhúsum bæjarins síðastliðin ár.
Klúbburinn mun blanda saman gömlu og nýju, gera grein fyrir
kvikmyndagerð ákveðinna þjóðlanda, taka verk ákveðins leikstjóra
fyrir og kynna strauma og stefnur á ákveðnum tímabilum eða í
nútímanum. Sjá dagskrá Fjalakattarins á www.filmfest.is
-------------------
More information about the Gandur
mailing list