[Gandur] KVIKSAGA KYNNIR: ÍMYND ÍSLANDS Í KVIKMYNDUM

Kristinn Schram kristinn at akademia.is
Mon Mar 5 11:09:55 GMT 2007


Kviksaga kynnir í samvinnu við Kvikmyndasafn Íslands og Fjalaköttinn:


ÍMYND ÍSLANDS Í KVIKMYNDUM

Sýning í Tjarnarbíó

Mánudaginn 5. mars kl. 19.00

Aðgangur ókeypis



Þann 5. mars næstkomandi mun Kviksaga og Fjalakötturinn sýna úrval  
Íslandsmynda í Tjarnarbíói. Íris Ellenberger sagnfræðingur mun fylgja  
myndunum úr hlaði en Íris hefur skrifað mastersritgerð um efnið við  
Háskóla Íslands. Fyrri mynd kvöldsins verður með lifandi undirleik  
Hallvarðar Ásgeirssonar.



Dagskrá kvöldsins

Íslandsfærd (valdar senur) eftir Leo Hansen frá árinu 1929

Sýnd með lifandi undirleik Hallvarðar Ásgeirssonar

og

This is Iceland eftir Kjartan Ó. Bjarnason frá árinu 1960





Íslandsmyndir er heiti á fjölbreyttum kvikmyndum sem eiga það  
sameiginlegt að fjalla um Ísland og Íslendinga. Myndirnar eru  
margvíslegar að eðli: fræðslumyndir, pólitískar áróðursmyndir,  
sölumyndbönd flugfélaga, fiskiðnaðarins eða  
landbúnaðarvöruframleiðenda og myndir sem skreyttu ræður  
farandfyrirlesara. Sumar myndanna eru aðeins varðveittar að hluta,  
aðrar að fullu. Sumar eru í léleg ástandi en aðrar eru aðeins  
varðveittar á síðum dagblaða í formi umsagna og gagnrýni. Stjórnendur  
þeirra eru allt frá bandarískum skólastjórum með klippivél, eða  
streðandi kvikmyndagerðarmönnum sem eiga erfitt með að eiga fyrir  
næstu máltíð, til atvinnumanna með volduga bakhjarla. Fyrstu  
heimildir um gerð Íslandsmynda eru frá árinu 1901 og þær eru enn í  
framleiðslu, aðallega að tilstuðlan ferðaþjónustunnar. Með öðrum  
orðum, eðli, framsetning, aldur og varðveisla myndanna er misjafnlega  
háttað. Myndirnar eiga þó sameiginlegan þann megintilgang að gera  
helstu einkennum Íslands og Íslendinga skil. Það gera þær jafnframt á  
mjög svipaðan hátt, þótt undarlegt megi virðast.

Kvikmyndirnar skapa Íslandi ímynd sem þegar hafði mótast á 18. og 19.  
öld. Þær endurskapa og þróa þá ímynd. Samfélagið breytist og  
Íslandsmyndir með. Takmarkanir hins nýja miðils setja  
umfjöllunarefninu einnig nokkrar skorður. Íslensk tunga hvarf nánast  
sem viðfangsefni, enda ekki mjög myndvæn. Saga Íslands missti vægi og  
tengdist Þingvöllum og styttum af þjóðhetjum nánum böndum. En  
náttúran hófst til vegs og virðingar. Íslendingar voru (og eru)  
náttúrubörn í Íslandsmyndum en þegar kom fram á 5. áratug 20. aldar  
urðu náttúrubörnin tæknivædd. Íslendingar (lesist: íslenskir  
karlmenn) voru umfram allt sjómenn og bændur sem börðust við  
náttúruöflin til að færa björg í bú en höfðu jafnframt sigrast á  
náttúrunni með því að virkja hana til húshitunar og  
rafmagnsframleiðslu. Er þetta ef til vill svipuð ímynd og við sjáum í  
Íslandsmyndum nútímans?



Frekari upplýsingar í síma 8661940 (Kristinn)


kviksaga at akademia.is

www.kviksaga.is





Um Kviksögu og Kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn



Kviksaga er miðstöð kvikmynda og fræða. Kviksaga er vettvangur þar  
sem fræði og kvikmyndir mætast t.d. við gerð heimildamynda,  
vídeólistar, kennsluefnis eða sjónrænna rannsókna á menningu og  
samfélagi. Kviksaga stuðlar einnig að samræðum og rannsóknum á  
kvikmyndaforminu og er grundvöllur fyrir áhugasama til að mætast,  
ræða og vinna saman. Á síðastliðnu ári hefur Kviksaga efnt til  
sýninga ásamt fræðilegri umfjöllun, haldið námskeið og staðið að  
kvikmyndahátíð. Á vefriti Kviksögu www.kviksaga.is er að finna  
ritstýrðar greinar, viðtöl, tilkynningar og myndbrot á sviði fræða og  
kvikmynda. Skrifstofa Kviksögu í ReykjavíkurAkademíunni er öllum opin  
til skrafs og ráðagerða, afnota myndefnis og tengslanets  
miðstöðvarinnar.



Kvikmyndaklúbburinn Fjalakötturinn er nýr vettvangur fyrir  
kvikmyndasýningar á Íslandi. Klúbburinn á heimili sitt í hinu  
sögufræga Tjarnarbíói og hefur það að markmiði að stórauka  
kvikmyndaúrval hér á landi með því að bjóða upp á sýningar á annars  
konar myndum en hefur tíðkast í bíóhúsum bæjarins síðastliðin ár.  
Klúbburinn mun blanda saman gömlu og nýju, gera grein fyrir  
kvikmyndagerð ákveðinna þjóðlanda, taka verk ákveðins leikstjóra  
fyrir og kynna strauma og stefnur á ákveðnum tímabilum eða í  
nútímanum. Sjá dagskrá Fjalakattarins á www.filmfest.is

VIÐ HVETJUM KVIKSÖGUGESTI TIL ÞESS AÐ SKRÁ SIG Í KLÚBBINN!
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070305/6f8040f2/attachment.html


More information about the Gandur mailing list