[Gandur] Prjóna-kaffihús

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Jan 30 15:31:03 GMT 2007


Prjóna kaffihús

Heimilisiðnaðarfélag Íslands ætlar í samvinnu við Handprjónasamband  
Íslands og Ístex að bjóða upp á svokallað „prjónakaffi“. Þar býðst  
öllu áhugafólki að koma með prjónana sína og njóta samveru annarra  
prjónandi gesta.

Fyrsta prjónakaffið verður á kaffihúsinu IÐU í Lækjargötu,  
fimmtudaginn 1. febrúar frá kl. 20.00–22.00
og verða góð tilboð í tilefni dagsins.

Védís Jónsdóttir, hönnuður hjá Ístex verður á staðnum og fræðir  
áhugasama um íslensku ullina og verður úrval sýnishorna á staðnum.  
Félagar í Handprjónasambandinu og Heimilisiðnaðarfélagi Íslands  
leiðbeina gestum.

Hugmyndin er að prjónakaffið verði framvegis fyrsta fimmtudag í mánuði.



-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070130/d83ea917/attachment.html


More information about the Gandur mailing list