[Gandur] Sagnafólk í samtíma sínum
Aðalheiður Guðmundsdóttir
adalh at hi.is
Tue Jan 30 09:01:55 GMT 2007
Sagnafólk í samtíma sínum: þemakvöld á vegum Félags þjóðfræðinga á
Íslandi
Þemakvöld um sagnafólk verður haldið í húsi Sögufélagsins,
Fischersundi þann 1. febrúar kl. 20.00. Fyrirlesarar eru Ingibjörg
Gestsdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir.
Ingibjörg Gestsdóttir, BA í þjóðfræði kynnir efni lokaritgerðar
sinnar: „Ég byrja bara og svo kemur hitt“. Ingibjörg vann ritgerð
sína upp úr viðtölum og rannsókn á efniviði sagnamannsins Gests
Friðjónssonar. Hún skoðar vísur og frásagnir Gests og lítur á
umheiminn í gegnum sögurnar, í hvaða formi sem þær eru.
Rósa Þorsteinsdóttir, MA í þjóðfræði og starfsmaður Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum nefnir erindi sitt „Sögukona úr
Sellátri“. Rósa fjallar um Kristínu Níelsdóttur sem fæddist árið 1910
og ólst upp í einni af hinum óteljandi eyjum Breiðarfjarðar. Sögur
hennar og kvæði voru hljóðrituð á árunum 1965 til 1975. Stóran hluta
af sagnasjóði sínum hefur Kristín átt frá barnæsku og þar eiga sagnir
úr fjölskyldunni sér fastan stað. Þessar sagnir af forfeðrum sínum,
sem oft sáu eða heyrðu eitthvað yfirnáttúrlegt, segir hún aftur og
aftur, í hverri upptökunni af annarri. Sagnir af æskuslóðunum,
eyjunum á Breiðafirði, eru henni einnig hugleiknar og hún trúir efni
þeirra yfirleitt. Það sem vekur athygli er að þótt Kristín virðist
hafa verið alin upp við sagnir frekar en ævintýri, hefur áhugi hennar
á fullorðinsárum frekar beinst að ævintýrum. Langflest fjalla þau um
greindar og ráðagóðar stúlkur sem reynast oftast fremri karlkyns
hetjunum við að ráða fram úr málum og birta með því oft á tíðum sömu
lífsviðhorf og sagnirnar sem Kristín segir af formæðrum sínum.
Með kveðju,
Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh
More information about the Gandur
mailing list