[Gandur] Af stað á Reykjanesið

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Wed Aug 8 10:19:57 GMT 2007


AF STAÐ á Reykjanesið -  2. ferð, Vatnsleysuströnd 

  

Menningar- og sögutengd gönguferð verður sunnudaginn 12. ágúst kl. 11 í boði
Sveitarfélagsins Voga www.vogar.is <http://www.vogar.is/>  og í samvinnu við
sjf menningarmiðlun og FERLIR. Gangan hefst við Kálfatjarnarkirkju á
Vatnsleysuströnd. Genginn verður hringur frá Kálfatjörn um Þórustaðastíg
(gömul þjóðleið), að Þórustaðaborg og Staðarborg sem eru gamlar fjárborgir
og endað á Kálfatjörn. Svæðið býr yfir minjum og mögnuðum sögum og fróðleik
sem leiðsögumaður Reykjaness munu miðla á leiðinni. Reynt verður að gera
gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Áætlað er að
gangan taki  ca. 2-3 klst. með stoppum. Auðveld leið en gott er að vera vel
skóaður. Allir á eigin ábyrgð. Í lok göngu verður Minjanefnd
Vatnsleysustrandar með opið hús í Skjaldbreið, gömlu hlöðunni og Norðurkoti,
gamla skólahúsinu sem er verið að gera upp á Kálfatjörn. Minjanefndin verður
jafnframt með kaffisölu á staðnum.

 

Gangan er önnur ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta
af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða á tímabilinu frá
6.ágúst – 2. sept. ´07. Boðið er upp á  þátttökuseðil þar sem göngufólk
safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5
gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhver heppinn fær góð
gönguverðlaun. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir
um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir.

 

Sigrún Jónsd. Franklín

leiðsögumaður Reykjaness

sjf menningarmiðlun

sjf at internet.is/6918828

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070808/932de456/attachment.html


More information about the Gandur mailing list