[Gandur] Vatnaniður í Snorrastofu
runa at thjodminjasafn.is
runa at thjodminjasafn.is
Wed Sep 6 15:44:27 GMT 2006
----- Forwarded by Rúna K. Tetzschner/Þjóðminjasafn/IS on 06.09.2006 15:42
-----
"Bergur" <bergur at snorrastofa.is>
06.09.2006 15:24
To: <runa at thjodminjasafn.is>
cc:
Subject: Vatnaniður í Snorrastofu
Vatnaniður. Dagskrá um Björn J. Blöndal
Dagskrá til minningar um Björn J. Blöndal laxveiðimann og rithöfund verður
flutt á vegum Snorrastofu í Reykholti og Safnahúss Borgarfjarðar
laugardaginn 9. september nk. í hátíðarsal Snorrastofu, gamla skólahúsinu
í Reykholti , kl. 13:00.
Dagskráin verður fjölbreytt, en Páll Brynjarsson,
sveitarstjóri Borgarbyggðar, mun setja hana. Fyrirlesarar verða Elín
Blöndal, Björn Blöndal, Jóhannes Nordal, Guðrún Nordal, Gunnar Hersveinn,
Össur Skarphéðinsson, Snorri Jóhannesson á Augastöðum og Þorkell Fjeldsted
í Ferjukoti. Þá verður lesið upp úr bók Björns, Hamingjudagar, auk þess
sem Silfurrefirnir verða með tónlistaratriði. Dagskránni stýrir Bjarni
Guðmundsson á Hvanneyri, en hún er opin öllum og er aðgangur ókeypis.
Björn Jónsson Blöndal var fæddur í Stafholtsey í Borgarfirði þann 9.
september 1902. Byggði hann nýbýli í landi Langholts í Bæjarsveit sem
hann nefndi Laugarholt og bjó þar frá árinu 1931. Hann stundaði
hefðbundinn búskap með kýr og sauðfé og síðar einnig garðyrkju auk þess
sem hann nýtti sér jarðhitann á staðnum til ræktunar í gróðurhúsum. Þess
má geta að hann stundaði búfræðinám á Hvanneyri á árunum 1921-1923 og var
um tíma hann kennari í Andakílshreppi, á árunum 1928-1931 og 1958-1961. Á
árunum 1922-1941 stundaði hann laxveiðar í net í Hvítá.
Björn var mikill laxveiðimaður og skytta en ekki síður mikill
náttúruskoðandi og náttúruunnandi. Stangveiði stundaði hann aðallega í
Borgarfjarðaránum, mest við veiðisvæði sitt við Hvítá, Svarthöfða, en
einnig veiddi hann í ýmsum ám víðar um landið.
Björn og Jórunn Sveinbjarnardóttir kona hans leigðu auk þess út veiðirétt
í Svarthöfða, bæði Íslendingum og erlendum mönnum, aðallega Bretum.
Björn var fjölfróður um fugla og fiska, var vel að sér í grasafræði og
flestu því sem varðar náttúru Íslands. Þá bjó hann yfir mikilli þekkingu
á íslenskri tungu og sögu Íslands. Hann átti stórt safn bóka og las mikið
jafnt á íslensku sem erlendum tungumálum. Þannig aflaði hann sér víðtækrar
þekkingar á áhugamálum sínum. Mjög gestkvæmt var á heimili þeirra hjóna,
Jórunnar og Björns enda voru þau vinamörg. Björn hafði einstaka
frásagnargáfu og kunni ógrynni af sögum. Var hann óspar á að miðla
fróðleik til samferðamanna sinna.
Björn var rithöfundur og komu út eftir hann 13 bækur. Auk þess ritaði
hann talsvert í blöð og tímarit og starfaði mikið sem sjálfboðaliði við
Orðabók Háskólans.
Hann lést 14. janúar 1987, á áttugasta og fimmta aldursári.
Bergur Þorgeirsson
forstöðumaður
Snorrastofu í Reykholti
320 Reykholti
Sími: 433 8000
Farsími: 893 1492
Heimasími: 435 1525
Heimasíða: www.snorrastofa.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20060906/5d0eca86/attachment.html
More information about the Gandur
mailing list