----- Forwarded by Rúna
K. Tetzschner/Þjóðminjasafn/IS on 06.09.2006 15:42 -----

"Bergur" <bergur@snorrastofa.is>

06.09.2006 15:24

To:
<runa@thjodminjasafn.is>

cc:

Subject:
Vatnaniður í Snorrastofu

Vatnaniður. Dagskrá um Björn
J. Blöndal

Dagskrá til minningar um Björn
J. Blöndal laxveiðimann og rithöfund verður flutt á vegum Snorrastofu
í Reykholti og Safnahúss Borgarfjarðar laugardaginn 9. september nk. í
hátíðarsal Snorrastofu, gamla skólahúsinu í Reykholti , kl. 13:00.

Dagskráin verður fjölbreytt, en Páll Brynjarsson, sveitarstjóri
Borgarbyggðar, mun setja hana. Fyrirlesarar verða Elín Blöndal, Björn Blöndal,
Jóhannes Nordal, Guðrún Nordal, Gunnar Hersveinn, Össur Skarphéðinsson,
Snorri Jóhannesson á Augastöðum og Þorkell Fjeldsted í Ferjukoti. Þá verður
lesið upp úr bók Björns, Hamingjudagar, auk þess sem Silfurrefirnir verða
með tónlistaratriði. Dagskránni stýrir Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri,
en hún er opin öllum og er aðgangur ókeypis.

Björn Jónsson Blöndal var fæddur
í Stafholtsey í Borgarfirði þann 9. september 1902. Byggði hann nýbýli
í landi Langholts í Bæjarsveit sem hann nefndi Laugarholt og bjó þar frá
árinu 1931. Hann stundaði hefðbundinn búskap með kýr og sauðfé og
síðar einnig garðyrkju auk þess sem hann nýtti sér jarðhitann á staðnum
til ræktunar í gróðurhúsum. Þess má geta að hann stundaði búfræðinám á
Hvanneyri á árunum 1921-1923 og var um tíma hann kennari í Andakílshreppi,
á árunum 1928-1931 og 1958-1961. Á árunum 1922-1941 stundaði hann
laxveiðar í net í Hvítá.

Björn var mikill laxveiðimaður
og skytta en ekki síður mikill náttúruskoðandi og náttúruunnandi. Stangveiði
stundaði hann aðallega í Borgarfjarðaránum, mest við veiðisvæði sitt við
Hvítá, Svarthöfða, en einnig veiddi hann í ýmsum ám víðar um landið.

Björn og Jórunn Sveinbjarnardóttir
kona hans leigðu auk þess út veiðirétt í Svarthöfða, bæði Íslendingum og
erlendum mönnum, aðallega Bretum.

Björn var fjölfróður um fugla og
fiska, var vel að sér í grasafræði og flestu því sem varðar náttúru Íslands.
Þá bjó hann yfir mikilli þekkingu á íslenskri tungu og sögu Íslands.
Hann átti stórt safn bóka og las mikið jafnt á íslensku sem erlendum
tungumálum. Þannig aflaði hann sér víðtækrar þekkingar á áhugamálum sínum.
Mjög gestkvæmt var á heimili þeirra hjóna, Jórunnar og Björns enda voru
þau vinamörg. Björn hafði einstaka frásagnargáfu og kunni ógrynni af sögum.
Var hann óspar á að miðla fróðleik til samferðamanna sinna.

Björn var rithöfundur og komu út
eftir hann 13 bækur. Auk þess ritaði hann talsvert í blöð og tímarit
og starfaði mikið sem sjálfboðaliði við Orðabók Háskólans.

Hann lést 14. janúar 1987, á áttugasta
og fimmta aldursári.

Bergur Þorgeirsson

forstöðumaður

Snorrastofu í Reykholti

320 Reykholti

Sími: 433 8000

Farsími: 893 1492

Heimasími: 435 1525

Heimasíða: www.snorrastofa.is