[Gandur] Kvikmyndasýning

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Tue Oct 10 09:52:07 GMT 2006


Fréttatilkynning frá 
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og 
Kviksögu – heimildamyndamiðstöð ReykjavíkurAkademíunnar 


IN AND OUT OF AFRICA 

Heimildamynd eftir Ilisa Barbash og Lucien Taylor 
Framleidd 1992 í Háskólanum í Berkeley, Kaliforníu, tímalengd 60 min. 

Sýnd í ReykjavíkurAkademíunni fimmtudagskvöldið 12. október kl. 20 
Katla Kjartansdóttir, þjóðfræðingur, fylgir myndinni úr hlaði. Aðgangur
ókeypis! 


Myndin fjallar í hnotskurn um fljótandi merkingu afrískra lista, og veltir
upp áleitnum spurningum um samband Vesturlandabúa við afríska menningu. Hún
sýnir á skoplegan og oft írónískan hátt hvernig gildi listmuna breytist
eftir því í hvaða samhengi þeir eru settir. Höfundar myndarinnar vefa saman
á skemmtilegan hátt sögur af vestrænum listaverkasöfnurum, múslímskum
kaupmönnum og afrískum listamönnum og fræðimönnum. Myndavélin fylgir
listaverkahöndlara frá Níger eftir á ferðum hans um heimahéruð og til
Kaliforníu í Bandaríkjunum. Við sjáum hvernig þessi snjalli kaupmaður býr
til eða bætir við verðgildi hlutanna og breytir þar með huglægri merkingu
þeirra með því að leika hlutverk einskonar menningarmiðlara. Hann túlkar
t.d. sama hlutinn á mismunandi hátt eftir því hvað hann heldur að hinn
vestræni kaupandi vilji heyra, og spinnur sögur um hlutina þar sem það á
við. Einnig sjáum við hvernig afrískum munum er breytt með ýmsum leiðum til
þess að auka við eða falsa gildi þeirra. Þetta sem vekur áhorfandann til
umhugsunar um margslungin hugtök eins og „hið ósvikna“ (authenticity),
upprunaleika og hvað er „ekta“ og hvað ekki? 

Myndin byggir að mestu á rannsóknum mannfræðingsins Christopher Steiners,
sem gerði viðamiklar vettvangsrannsóknir á afrísku handverki á
Fílabeinsströndinni. Hún er í raun sjónræn etnógrafía og því hentar
kvikmyndamiðillin einkar vel til að koma rannsóknarniðurstöðum og gögnum til
skila til áhorfandans. 

Myndin tekur um klukkustund í sýningu og er með enskum texta. 

Minnum jafnframt á sýninguna 

Flóðhestar og framakonur 
Afrískir minjagripir á Íslandi 

Sýningin í Gerðubergi er opin virka daga frá kl. 11-17 og um helgar frá
13-16. 


Kviksaga – heimildamyndamiðstöð ReykjavíkurAkademíunnar 
JL-húsinu, Hringbraut 121, 107 Rvk, 4. hæð

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20061010/d755a67b/attachment.html


More information about the Gandur mailing list