[Gandur] Ókunn sjónarhorn - síðasta sýningarhelgin

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Thu Nov 23 23:22:29 GMT 2006


Ókunn sjónarhorn í Myndasalnum – síðasta sýningarhelgin
Í Myndasal Þjóðminjasafnsins á 1. hæð stendur nú yfir greiningarsýningin 
Ókunn sjónarhorn. Framundan er síðasta sýningarhelgin, 25.-26. nóvember og 
eru því síðustu forvöð að skoða myndirnar. Þarna má sjá ýmsar myndir víða 
að af landinu frá tímabilinu 1930-1950 sem safninu hafa borist gegnum 
tímann. Þegar sýningin var sett upp í lok september hafði ekki tekist að 
bera kennsl á myndefnið og voru gestir beðnir að gefa upplýsingar um það. 
Þetta hefur reynst árangursríkt því hjálp allra þeirra sem skoðað hafa 
sýninguna hefur nú tekist að greina allmargar af myndunum. Betur má þó ef 
duga skal og eru gestir hvattir til að koma og greina þær sem eftir eru um 
helgina!


Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20061123/aa737309/attachment-0001.html


More information about the Gandur mailing list