[Gandur] Landnámsmaður Vesturheims

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Fri May 26 14:24:39 GMT 2006


Landnámsmaður Vesturheims. Vínlandsför Þorfinns Karlsefnis.

 

Laugardaginn 27. maí kl. 14:00 flytur Jónas Kristjánsson fyrirlestur á
Þjóðminjasafni Íslands um leiðangur Þorfinns Karlsefnis til Vínlands hins
góða. Hann sigldi þangað frá Grænlandi ásamt Guðríði konu sinni og fríðu
föruneyti með alls konar búfé og hugðist taka sér þar bólfestu. Dvaldist
hann þrjá vetur á Vínlandi, en hlaut þá að hverfa brott sakir ófriðar við
frumbyggja landsins og innbyrðis deilna liðsmanna sinna. Þau Guðríður héldu
síðan heim til Íslands og gerðust vel metnir bændur í átthögum hans í
Skagafirði. 

 

Jónas Kristjánsson setur í fyrirlestrinum fram nýtt mat hinna fornu
heimilda. Næstum einvörðungu er farið eftir Eiríks sögu rauða, sem öðru
nafni nefnist Þorfinns saga karlsefnis. Að mati Jónasar er hún ekki aðeins
ítarlegasta heldur traustasta heimildin um ferðir Karlsefnis, rituð á 13.
öld. Mikill ágreiningur er um það hvar Vínland hafi verið en Jónas telur að
leiðangursmenn hafi dvalist á austurströndu lands þess er nú kallast
Nýfundnaland. Þangað hefur hann farið í fjórar könnunarferðir, skoðað
staðháttu og efnt til kynna og vináttu við fjölda heimamanna. Hann telur að
landslag og gróðurfar falli vel við söguna og þykist hafa komið auga á
nokkra þá staði sem þar er frá sagt. Enn hefur hann ekki fundið beinar
minjar um dvöl þeirra Karlsefnis, hvorki rústir húsa né einstaka hluti. En
leit er haldið áfram með dyggilegum stuðningi áhugasams fólks á
Nýfundnalandi, og standa vonir til þess að fyrr eða síðar muni koma í ljós
einhver ummerki sem Þorfinnur karlsefni og Guðríður Þorbjarnardóttir hafa
látið eftir sig í sínu fyrirheitna landi. 

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20060526/bf47e8ca/attachment.html


More information about the Gandur mailing list