[Gandur] Landnámsmaður Vesturheims. Vínlandsför Þorfinns Karlsefnis.

runa at thjodminjasafn.is runa at thjodminjasafn.is
Wed May 24 11:54:56 GMT 2006


Landnámsmaður Vesturheims. Vínlandsför Þorfinns Karlsefnis.

Laugardaginn 27. maí kl. 14:00 flytur Jónas Kristjánsson fyrirlestur á 
Þjóðminjasafni Íslands um leiðangur Þorfinns Karlsefnis til Vínlands hins 
góða. Hann sigldi þangað frá Grænlandi ásamt Guðríði konu sinni og fríðu 
föruneyti með alls konar búfé og hugðist taka sér þar bólfestu. Þau 
dvöldust þrjá vetur á Vínlandi en urðu að hverfa brott vegna innbyrðis 
deilna í liði þeirra og ófriðar við frumbyggja landsins. Þau Þorfinnur og 
Guðríður gerðust síðan vel metnir bændur í átthögunum í Skagafirði á 
Íslandi. Í fyrirlestri Jónasar kemur fram nýtt mat fornra heimilda. 
Aðallega er farið eftir Eíríks sögu rauða sem öðru nafni nefnist Þorfinns 
saga karlsefnis. Auk þess hefur Jónas farið í könnunarleiðangra til 
austurstrandar Nýfundnalands þar sem hann telur Vínland hafa verið. 

Jónas Kristjánsson setur í fyrirlestrinum fram nýtt mat hinna fornu 
heimilda. Næstum einvörðungu er farið eftir Eiríks sögu rauða, sem öðru 
nafni nefnist Þorfinns saga karlsefnis. Að mati Jónasar er hún ekki aðeins 
ítarlegasta heldur traustasta heimildin um ferðir Karlsefnis, rituð á 13. 
öld. Mikill ágreiningur er um það hvar Vínland hafi verið en Jónas telur 
að leiðangursmenn hafi dvalist á austurströndu lands þess er nú kallast 
Nýfundnaland. Þangað hefur hann farið í fjórar könnunarferðir, skoðað 
staðháttu og efnt til kynna og vináttu við fjölda heimamanna. Hann telur 
að landslag og gróðurfar falli vel við söguna og þykist hafa komið auga á 
nokkra þá staði sem þar er frá sagt. Enn hefur hann ekki fundið beinar 
minjar um dvöl þeirra Karlsefnis, hvorki rústir húsa né einstaka hluti. En 
leit er haldið áfram með dyggilegum stuðningi áhugasams fólks á 
Nýfundnalandi, og standa vonir til þess að fyrr eða síðar muni koma í ljós 
einhver ummerki sem Þorfinnur karlsefni og Guðríður Þorbjarnardóttir hafa 
látið eftir sig í sínu fyrirheitna landi. 


Bestu kveðjur,
Rúna K. Tetzschner
kynningarfulltrúi

Þjóðminjasafn Íslands

s. 530-2209, fars. 691-3214
netf. runa at natmus.is
veff. http://www.natmus.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20060524/07771c8f/attachment.html


More information about the Gandur mailing list