Landnámsmaður Vesturheims. Vínlandsför
Þorfinns Karlsefnis.

Laugardaginn 27. maí kl. 14:00
flytur Jónas Kristjánsson fyrirlestur á Þjóðminjasafni Íslands um leiðangur
Þorfinns Karlsefnis til Vínlands hins góða. Hann sigldi þangað frá Grænlandi
ásamt Guðríði konu sinni og fríðu föruneyti með alls konar búfé og hugðist
taka sér þar bólfestu. Þau dvöldust þrjá vetur á Vínlandi en urðu að hverfa
brott vegna innbyrðis deilna í liði þeirra og ófriðar við frumbyggja landsins.
Þau Þorfinnur og Guðríður gerðust síðan vel metnir bændur í átthögunum
í Skagafirði á Íslandi. Í fyrirlestri Jónasar kemur fram nýtt mat fornra
heimilda. Aðallega er farið eftir Eíríks sögu rauða sem öðru nafni nefnist
Þorfinns saga karlsefnis. Auk þess hefur Jónas farið í könnunarleiðangra
til austurstrandar Nýfundnalands þar sem hann telur Vínland hafa verið.

Jónas Kristjánsson setur í fyrirlestrinum
fram nýtt mat hinna fornu heimilda. Næstum einvörðungu er farið eftir Eiríks
sögu rauða, sem öðru nafni nefnist Þorfinns saga karlsefnis. Að mati Jónasar
er hún ekki aðeins ítarlegasta heldur traustasta heimildin um ferðir Karlsefnis,
rituð á 13. öld. Mikill ágreiningur er um það hvar Vínland hafi verið en
Jónas telur að leiðangursmenn hafi dvalist á austurströndu lands þess er
nú kallast Nýfundnaland. Þangað hefur hann farið í fjórar könnunarferðir,
skoðað staðháttu og efnt til kynna og vináttu við fjölda heimamanna. Hann
telur að landslag og gróðurfar falli vel við söguna og þykist hafa komið
auga á nokkra þá staði sem þar er frá sagt. Enn hefur hann ekki fundið
beinar minjar um dvöl þeirra Karlsefnis, hvorki rústir húsa né einstaka
hluti. En leit er haldið áfram með dyggilegum stuðningi áhugasams fólks
á Nýfundnalandi, og standa vonir til þess að fyrr eða síðar muni koma í
ljós einhver ummerki sem Þorfinnur karlsefni og Guðríður Þorbjarnardóttir
hafa látið eftir sig í sínu fyrirheitna landi.

Bestu kveðjur,

Rúna K. Tetzschner

kynningarfulltrúi

Þjóðminjasafn Íslands

s. 530-2209, fars. 691-3214

netf. runa@natmus.is

veff. http://www.natmus.is