[Gandur] Hekla Dögg Jónsdóttir handhafi Guðmundustyrks

Listasafn Reykjavíkur soffia.karlsdottir at reykjavik.is
Sat Jun 24 16:28:28 GMT 2006


Listasafn Reykjavíkur
--------------------------------------------------------------------------------
Hekla Dögg Jónsdóttir handhafi Guðmundustyrks 




Fréttabréf þetta er á myndrænu formi hér
http://phoenix.gagarin.is/email-manager/archive.php/id/577,107,8ceab9b03c049a3ba067f952f8c8010e


Hekla Dögg Jónsdóttir hlýtur styrk úr  Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur

Við opnun á sumarsýningu í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum fyrr í dag fór fram afhending úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur á sviði myndlistar. Viðurkenningu fyrir framlag sitt hlaut að þessu sinni Hekla Dögg Jónsdóttir. Sjóðinn stofnaði myndlistarmaðurinn Erró til minningar um frænku sína Guðmundu og er sjóðnum ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna. Veitt hefur verið úr sjóðnum árlega ef frá er talið árið í fyrra og fer framlagið til listakonu sem þykir skara fram úr. Er þetta í áttunda sinn sem styrkur er  veittur úr sjóðnum. 
Það var Hafþór Yngvason safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og formaður sjóðsstjórnar sem afhenti Heklu Dögg viðurkenninguna. Aðrir sem skipa sæti í stjórn sjóðsins eru Ólafur Kvaran safnstjóri Listasafns Íslands og Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri.
Listasjóður Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi var stofnaður í tilefni af gjöf Erró á andvirði íbúðar að Freyjugötu 34, er Guðmunda hafði arfleitt hann að. Markmið sjóðsins er að styrkja listakonur með því að veita árlega framlag til viðurkenningar og eflingar á listsköpun kvenna. Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun í vörslu borgarsjóðs Reykjavíkur. Umsjón með sjóðnum hafa Reykjavíkurborg og Errósafn.

Þær konur sem áður hafa hlotið viðurkenningu úr sjóðnum eru Ólöf Nordal, Finna Birna Steinsson, Katrín Sigurðardóttir, Gabríela Friðriksdóttir, Sara Björnsdóttir, Þóra Þórsdóttir og Guðrún Vera Hjartardóttir. 

Hekla Dögg Jónsdóttir
Hekla Dögg útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1994. Hún var tvö ár sem gistinemi í Þýskalandi, eitt ár í Kiel og eitt ár í Frankfurt am Main. Síðan lá leiðin til Bandaríkjanna þar sem hún lauk BFA og meistaragráðu (MFA) frá einum besta listaskóla Bandaríkjanna, California Institute of the Arsts (Cal Arts).
Síðan 1999 hafa verk Heklu verið sýnd víða, bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur tekið þátt í samsýningum í Danmörku, Noregi, Írlandi, Þýskalandi, Spáni, Kanada, og á bæði austur- og vesturströnd Bandaríkjanna.
Hekla er einn af stofnendum Kling og Bank gallerísins, þar sem hún hefur unnið sem sýningarstjóri. Þá hefur hún flutt fyrirlestra og kennt við Listháskólann.

Kær kveðja,
Soffía Karlsdóttir
kynningarstjóri Listasafns Reykajvíkur
s: 590-1200 / 820-1202
soffia.karlsdottir at reykjavik.is 




--------------------------------------------------------------------------------
Kjósir þú að fá ekki fleiri bréf sem þetta frá okkur geturðu afskráð þig hér:
[/afskrá]

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20060624/65993392/attachment.html


More information about the Gandur mailing list