[Gandur] Landsbyggðarráðstefnan nálgast
Aðalheiður Guðmundsdóttir
adalh at hi.is
Wed Feb 22 15:13:14 GMT 2006
Kæru þjóðfræðingar og aðrir áhugamenn um þjóðfræði og sagnfræði.
Ég minni á að skráning á landsbyggðarráðstefnu stendur yfir ! Ég vil
hvetja félagsmenn Félags þjóðfræðinga til að fjölmenna á ráðstefnuna
og sýna að við höfum vilja til að taka þátt í áframhaldandi starfi
með sagnfræðingum.
„Gaman er að koma í Keflavík“. Landsbyggðarráðstefna
Félags þjóðfræðinga á Íslandi, Sagnfræðingafélags Íslands og heimamanna,
Duus-húsum í Reykjanesbæ, laugardaginn 4. mars 2006.
08:00 Rúta frá Nýja Garði
09:00-10:30 Kynnis- og fræðsluferð um Keflavíkurflugvöll
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, rekur þær breytingar
sem
orðið hafa á umsvifum þess undanfarin ár
10:30-10:45 Setning ráðstefnunnar, Duus-húsum
10:45-12:15 „Kaninn“ og þjóðin.
1. Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur: Dægurtónlist, erlend áhrif,
bandaríski herinn og „Völlurinn“
2. Gestur Guðmundsson félagsfræðingur: Kanaskríll í Keflavík:
Ameríkanisering, þjóðmenning og sjávarselta í íslensku rokki
3. Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja: „Enda komu
þeir
færandi hendi.“ Áhrif bandaríska varnarliðsins á mannlíf á Suðurnesjum,
neyslu, dægurmenningu, málfar og samskipti kynjanna
12:30-13:30 Hádegisverður í Duus-húsum
13:30-15:00 Sagnir og söfn á Suðurnesjum.
4. Sigrún Jónsdóttir Franklín þjóðfræðingur og leiðsögumaður:
Sagnamenning
á Suðurnesjum
5. Sigrún Ásta Jónsdóttir safnstjóri: Samtíminn í byggðasöfnum
6. Helgi Hólm: Sögulegar heimildir af heimaslóðum. Blaðaútgáfa Faxa í
65 ár
15:00-15:30 Kaffihlé
15:30-17:00 Innreið og útrás íslenskra dægurlaga.
7. Karl Jóhann Garðarsson sagnfræðingur: „Óþjóðhollir starfshættir“. Líf
og dauði menningar og frelsis með „innreið“ erlendra dægurlaga.
8. Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur: „Þau minna á fjallavötnin
fagurblá“: Um dægurlagatexta og samfélag á Suðurnesjum
9. Þór Tjörvi Þórsson sagnfræðingur: Vegir liggja til allra átta.
Hljómar
og upphaf útrásar íslenskra tónlistarmanna
17:00-18:00 Móttaka í boði Reykjanesbæjar
18:00-21:00 „Kvöldin þar þau eru engu lík“. Kvöldverður í Duus-húsi, og
keflvískir tónlistarmenn taka vonandi lagið undir borðum
c. 21:00-21:45 Rútuferð í bæinn
Skráning á ráðstefnuna er hafin og stendur til þriðjudagsins 28.
febrúar.
Þátttaka í ráðstefnunni er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.
Fargjald í rútu fram og til baka, auk kynnisferðar um
Keflavíkurflugvöll,
er þúsund krónur og greiðist í rútu að morgni ráðstefnudags. Áhugasamir
skrái sig hjá Aðalheiði Guðmundsdóttur, adalh at hi.is (868-0306) eða Guðna
Th. Jóhannessyni, gudnith at hi.is (895-2340), og taki fram hvort þeir
skrá sig
aðeins á ráðstefnuna eða rútuferðir sömuleiðis.
Ókeypis kaffiveitingar verða í boði á meðan ráðstefnunni stendur.
Þar að
auki verður hádegisverður í boði fyrir aðeins 700 krónur (súpa og
„fiskitvenna“ – lúða og skötuselur), og þríréttaður kvöldverður með
kaffi
fyrir 3.000 krónur (sjávarréttasúpa, kjúklingabringa og eftirréttur).
Þeir sem vilja
skemmta sér fram á rauða nótt geta gist á Hótel
Keflavík og er þar hagstætt tilboð að fá fyrir ráðstefnugesti. Nánari
upplýsingar um það fást með fyrirspurn á netfangið
sigrun at hotelkeflavik.is eða síma 420-7000.
Helstu styrktaraðilar ráðstefnunnar eru: Reykjanesbær, Byggðasafn
Reykjanesbæjar, Iceland Express, menntamálaráðuneyti og
utanríkisráðuneyti.
Með kveðju fyrir hönd undirbúningsnefndar,
Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh
More information about the Gandur
mailing list