[Gandur] Hin mörgu andlit Maríu í Þjóðminjasafninu. Leiðsögn Þóru Kristjánsdóttur 12. des. kl. 12:10

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Sun Dec 10 13:21:40 GMT 2006


Hin mörgu andlit Maríu í Þjóðminjasafninu.
Sérfræðileiðsögn Þóru Kristjánsdóttur og táknmálsleiðsögn þriðjudaginn 12. 
desember klukkan 12:10. Táknmálstúlkur verður með leiðsögninni

Hinar fjölbreytilegu sérfræðileiðsagnir Þjóðminjasafnsins Ausið úr 
viskubrunnum halda áfram. Þriðjudaginn 12. desember klukkan 12:10 verður 
Þóra Kristjánsdóttir list- og sagnfræðingur með erindi og leiðsögn sem hún 
kallar Hin mörgu andlit Maríu í Þjóðminjasafninu. Þóra byrjar í 
fyrirlestrarsal safnsins og gengur síðan með gestum um safnið og bæði 
sýnir og segir frá Maríu mey. 

,,Líkneskin og myndirnar af Maríu í safninu,” segir Þóra, ,,eru eins 
ólíkar og þær eru margar. Þar eru málaðar myndir, útskornar úr tré og 
beini, höggnar út í stein, greyptar í silfur og aðra dýra málma og 
saumaðar á klæði. Maríumyndir og líkneski í eigu Þjóðminjasafnsins eru 
flest frá því fyrir siðaskipti en þó eru til yngri myndir líka, bæði eftir 
íslenskan prest frá upphafi 18. aldar og ýmsar útsaumsmyndir. Íslenskar 
konur hafa haldið áfram að sauma Maríu út í klæði alveg fram á þennan dag. 
Af öllum dýrlingum var jómfrú María, himnadrottningin og hin syrgjandi 
móðir guðs, mest dýrkuð hér á landi í kaþólskum sið og víðast annars 
staðar meðal kristinna manna. Líklega hafa langflestar kirkjur á Íslandi 
átt Maríumyndir og sumar jafnvel margar.“

Þóra starfar sem sérfræðingur í kirkjulist og listgripum fyrri alda í 
Þjóðminjasafni Íslands. Hún á að baki fjölþættan starfsferil, meðal annars 
sem listráðunautur Kjarvalsstaða, verkefnisstjóri listsýninga í Norræna 
húsinu og hefur verið virk í listvinafélagi Hallgrímskirkju. Í fyrra kom 
auk þess út bók hennar Mynd á þili. Íslenskir myndlistarmenn á 16., 17. og 
18. öld sem er grundvallarrit um listsköpun Íslendinga frá siðaskiptum og 
fram á 18. öld. 

Hjá Þóru Kristjánsdóttur fer saman mikil þekking og fróðleikur og 
hæfileiki til að miðla þeirri þekkingu sem hún býr yfir á lifandi og 
auðskiljanlegan hátt. Hún segir þannig frá að unun er á að hlusta og mun 
vafalaust ausa úr viskubrunni sínum fyrir þá sem koma í leiðsögnina 
næstkomandi þriðjudag. 


Þjóðminjasafnið fær viðurkenningu Sjálfsbjargar fyrir aðgengi fyrir alla.
Táknmálstúlkur verður með leiðsögn Þóru Kristjánsdóttur en Þjóðminjasafn 
Íslands leggur áherslu á aðgengi fyrir alla. Á Alþjóðadegi fatlaðra 
sunnudaginn 3. desember síðastliðinn tóku Margrét Hallgrímsdóttir 
þjóðminjavörður og Anna Guðný Ásgeirsdóttir fjármálastjóri safnsins við 
viðurkenningu til Þjóðminjasafnsins frá Sjálfsbjörgu Isf fyrir gott 
aðgengi fyrir alla að nýju Þjóðminjasafni. Þarna er um afar mikilvæga 
viðurkenningu að ræða sem Þjóðminjasafnið er bæði þakklátt fyrir og stolt 
af. Viðurkenningin er jafnframt hvatning til enn frekari árangurs á þessu 
sviði. Þjóðminjasafnið mun áfram kappkosta að gera safnið aðgengilegt 
öllum landsmönnum.


Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20061210/16015e4c/attachment.html


More information about the Gandur mailing list