[Gandur] Galdur og samfélag frá miðöldum til upplýsingar

Sögusmiðjan sogusmidjan at strandir.is
Tue Aug 8 15:48:43 GMT 2006


Galdur og samfélag frá miðöldum til upplýsingar

Ráðstefna haldin dagana 1.-2. september að Laugarhóli í Bjarnarfirði á Ströndum.

Ráðstefnan er haldin á vegum verkefnsins ,,Vestfirðir á miðöldum" en að því standa Hugvísindastofnun HÍ (Miðaldastofa), Senter for studier i vikingtid og nordisk middelalder í Osló, Fornleifastofnun Íslands, Strandagaldur, Náttúrustofa Vestfjarða, Byggðasafn Vestfjarða, Minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti, Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, Snjáfjallasetur, Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða. 

Markmið hópsins sem að verkefninu stendur, er að auka þekkingu á sögu Vestfjarða frá landnámi til 1800; að skoða sérstaklega samfélagsþróun með tilliti til náttúrufars, menningariðju, erlendra samskipta og í samhengi við almenna þróun á Íslandi. Auk þess er áhersla lögð á að styrkja og auðga menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu. 

Markmið ráðstefnunnar eru m.a.:
-að skoða samspil galdra og samfélags fyrr á öldum, með sérstöku tilliti til galdramenningar sem þreifst á Vestfjörðum.
-að kanna hvað í umhverfi, menningu og atvinnuháttumVestfjarða ýtti undir galdratrú í vestfirsku samfélagi.
 -að stefna saman fræðimönnum úr ýmsum áttum, innlendum og erlendum, til að ná fram þverfaglegu sjónarhorni á viðfangsefnið.
-að vera framlag til þeirra akademísku rannsókna á göldrum sem fræðimenn í Strandagaldri hafa unnið að á undanförnum árum.
- að styðja við bakið á menningartengdri ferðaþjónustu sem byggð hefur verið upp í Strandasýslu í tengslum við galdra og galdramál.

Ráðstefnan ,,Galdrar og samfélag" að Laugarhóli í Bjarnarfirði
                                                                                   
Dagskrá:

Föstudagur 1. september 2006
 
13:00              Setning ráðstefnu í Galdrasafninu á Hólmavík.
a)      Kynning á safninu > Sigurður Atlason
b)      Kynning á svæðinu > Jón Jónsson
 
14:30               Haldið að Laugarhóli, gestir koma sér fyrir.
 
Fyrirlestrar: 
 
16:00               Inngangur > Torfi H. Tulinius, Háskóli Ísland > Ráðstefnustjóri.
 
16:10               Neil Price,  Universititet i Oslo: "The archaeology of magic in Viking 
                        Age Scandinavia"
 
16:50               Helga Kress, Háskóla Íslands: "Óþarfar unnustur áttu." Um samband 
                        karlmennsku, kvennafars og fjölkynngi í Íslendingasögum.
 
17:30               Sverrir Jakobsson, Háskóli Íslands: "Galdur og forspá í ríkisvaldslausu 
                        samfélagi"
 
19:00               Matur
  
20:30               Heimsókn í Kotbýli kuklarans. 
 
 
Laugardagur 2. september 2006
 
10:00               Ármann Jakobsson, íslenskufræðingur: "Hvað er tröll nema það?"
 
10:40               Már Jónsson, Háskóla Íslands: "Ákvæði Jónsbókar um galdra: uppruni og áhrif"
 
11:20               Kaffi
 
11:40               Stephen A. Mitchell, Harvard University: "The 'pactum cum diabolo' and Nordic Witchcraft"
  
12:20               Rune Blix Hagen, Universitetet i Tromsø > "Shamanism, Sami magic and witch-trials in Arctic Norway during the 17th Century"
  
13:00               Matur
  
14:00               Helgi Þorláksson, Háskóla Íslands >  ,,Uppsprettur brunnur alls djöfuls í þeirri sveit. Vestfjarðakjálkinn, galdramál og Brynjólfur biskup."
 
14:40               Dr. Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur > ,,Meingjörð eða góðgjörð - til hvers er galdur?"
  
15:20               Kaffi
  
15:40               Magnús Rafnsson, Strandagaldri > ,,Hvaða galdur? Ólík viðhorf alþýðu og yfirvalds."
  
16:20               Samantekt og almennar umræður.
  
19:00               Hátíðarkvöldverður 
 
22:00               Megas og Súkkat  (Aðgangseyrir verður ca. 500-1000 kr.)
  
 
Sunnudagur 3. september 2006
 
Frjálst val. 
 
10:00-15:00                 Ferð í Djúpuvík og Trékyllisvík á slóðir Guðsgjafarþulu.
  
Skráning er á netinu, www.midaldir.is. Ekkert ráðstefnugjald er innheimt, en verð á gistingu og mat að Laugarhóli má sjá á skráningarblaði. 
 
Nánari upplýsingar veita:
 
Magnús Rafnsson, arnlin at snerpa.is (451-3384)
Andrea S. Harðardóttir, andrea at snerpa.is (848-2068)
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20060808/b267bbcc/attachment.html


More information about the Gandur mailing list