[Gandur] Málþing um ævintýri
Aðalheiður Guðmundsdóttir
adalh at hi.is
Fri Apr 28 09:36:41 GMT 2006
Einu sinni var...
Málþing um ævintýri á vegum Félags þjóðfræðinga á Íslandi í samvinnu
við Þjóðminjasafn Íslands og Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi.
Málþingið fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins laugardaginn
6. maí nk. frá kl. 13.00–16.45.
Á málþinginu munu stíga á svið fræðimenn í þeim tilgangi að gefa
áheyrendum innsýn í hin fjölbreytilegustu rannsóknarefni sem tengjast
íslenskum ævintýrum. Málþingið er tileinkað minningu Hallfreðar Arnar
Eiríkssonar, fyrrum sérfræðings á Árnastofnun, sem m.a. safnaði
ævintýrum og rannsakaði. Í tengslum við málþingið verður sett upp
örsýning á munum sem tengjast ævinýrum á einhvern hátt, skráningu
þeirra, útgáfu og rannsóknum. Sýningin verður í fyrirlestrarsalnum,
og er fólk hvatt til að mæta tímanlega til að skoða gripina, en
einnig gefst kostur á að virða þá fyrir sér í kaffihléi.
Dagskráin er sem hér segir:
13.00 Setning
13.05 Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur: Nokkur orð um Hallfreð Örn
Eiríksson
13.15 Rósa Þorsteinsdóttir, þjóðfræðingur: Sagan upp á hvern mann.
Ævintýri og sagnafólk
13.45 Jóna Valborg Árnadóttir, M.Paed. í íslensku: Rauðhetta gleypir
Öskubusku. Kvenhetjur í gömlum ævintýrum og nýjum
14:15 Kristín Unnsteinsdóttir, forstöðumaður námsvers Ártúnsskóla:
Fjórar sagnakonur úr Fljótshlíð. Samanburður á menningarlegum,
félagslegum og sálfræðilegum þáttum í bakgrunni þeirra
14.45 Kaffihlé
15.15 Baldur Hafstað, prófessor við KHÍ: Bláskeggur og Loðinbarði
15.45 Aðalheiður Guðmundsdóttir, stundakennari við HÍ: „Legg ég á
og mæli um“
16.15 Ásdís R. Magnúsdóttir, dósent í frönsku við HÍ: Íslensk
ævintýri í Frakklandi
16.45 Málþingslok
Eftir hvern fyrirlestur gefst áheyrendum kostur á að spyrja
fyrirlesarana nánar út í efnið. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!
Sjá einnig http://www.akademia.is/thjodfraedingar
-------------- next part --------------
Skipped content of type multipart/appledouble-------------- next part --------------
Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh
More information about the Gandur
mailing list