[Gandur] Eiðar nálgast

Rósa Þorsteinsdóttir rosat at hi.is
Tue May 17 14:25:44 BST 2005


Skráning á landsbyggðarráðstefnuna á Eiðum er nú hafin. Upplýsingar um 
skráningu og dagskrá ráðstefnunnar er
að finna á heimasíðu þjóðfræðingafélagsins, www.akademia.is/thjodfraedingar

Guðni Th. Jóhannesson formaður Sagnfræðingafélagsins skrifar:

Við í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar höfum eftir bestu getu reynt að
setja saman vandaða dagskrá þar sem saman fara fróðleg erindi og
skemmtilegar fræðsluferðir. Velvild ýmissa fyrirtækja og stofnana ræður
því einnig að tekist hefur að stilla ráðstefnugjaldi mjög í hóf. Við
hvetjum alla til að láta slag standa, skella sér á Eiða og njóta þar og
annars staðar eystra fræðilegrar umræðu í fallegu umhverfi.






More information about the Gandur mailing list