[Gandur] Robinson flytur fyrirlestur

ReykjavíkurAkademían reykjavikur at akademia.is
Mon Jun 6 09:42:40 BST 2005


Mánudaginn 6. júní flytur breski sagnfræðingurinn Robb Robinson
fyrirlestur í ReykjavíkurAkademíunni sem nefnist "Some aspects of the
evolution of British fisheries policy and fishing limits, c. 1800-1976."
Robb Robinson er höfundur bókarinnar Trawling. The Rise and Fall of the
British Trawl Fishery. Hann er auk þess einn aðalhöfunda nýlegs rits um
fiskveiðisögu Englendinga og meðhöfundur mikils rits um fiskveiðisögu
Norður Atlantshafs sem kemur út í haust. Þá hefur hann skrifað fjölda
greina um breska atvinnu- og fiskveiðisögu.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum ReykjavíkurAkademíunnar og
Sagnfræðingafélags Íslands. Hann verður í fundarsal
ReykjavíkurAkademíunnar og hefst kl. 12:05.




More information about the Gandur mailing list