[Gandur] Dieter Roth um helgina
Listasafn Reykjavíkur
soffia.karlsdottir at reykjavik.is
Wed Jun 1 10:06:37 BST 2005
Listasafn Reykjavíkur
--------------------------------------------------------------------------------
Dieter Roth um helgina
Fréttabréf þetta er á myndrænu formi hér
http://phoenix.gagarin.is/email-manager/archive.php/id/33,9,a925c719dfa61efb857ab4e2cd86c57c
Dieter Roth um helgina
Listsmiðjur
Síðasta Dieter Roth listsmiðjan í sumar verður laugardaginn 4. júní í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi og er hún ætluð 13-16 ára unglingum. Listsmiðjan hefst kl. 11 og stendur til kl.15. Þátttökugjald er kr. 3.300 og er hádegisverður innifalinn.
Listmiðja fyrir börn og fullorðna verður einnig í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi sunnudaginn 5. júní frá kl. 13. 15 og er þátttökugjald kr. 1.000 (sama verð fyrir börn og fullorðna).
Skráning á Listsmiðjurnar fer fram í Listasafni Reykjavíkur í síma 590 1200 og um netfang fraedsludeild at reykjavik.is eða í Myndlistaskólanum í Reykjavík í síma 551 1990 frá kl. 13. - 17.
Í listsmiðjunum verður unnið út frá verkum Dieters Roth, list hans könnuð og sköpunargleði þátttakenda virkjuð. Þar gefst kostur á nálgun við list Dieters sem er einstök og gefur óteljandi möguleika til túlkunar, úrvinnslu og upplifunar.
Listsmiðjurnar eru haldnar í samstarfi Listasafns Reykjavíkur og Myndlistaskólans í Reykjavík. Leiðbeinendur eru myndlistarmenn úr hópi kennara skólans.
Sýningarstjóraspjall
Björn Roth sýningarstjóri Lestar annast leiðsögn um sýninguna í Gallerí 100° laugardaginn 4. júní kl. 15.00.
Leiðsögn
Sunnudaginn 5. júní veður leiðsögn um sýningu Dieters Roth í Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi kl. 14 og kl. 16 á báðum stöðunum.
Sjá nánar http://www.listasafnreykjavikur.is/Hafnarhus/syningar/dieterroth.shtml
--------------------------------------------------------------------------------
Kjósir þú að fá ekki fleiri bréf sem þetta frá okkur geturðu afskráð þig hér:
[/afskrá]
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20050601/c0fc9684/attachment.html
More information about the Gandur
mailing list