[Gandur] (no subject)

Kristín Einarsdóttir kriste at hi.is
Sat Apr 23 18:17:09 BST 2005


Landsbyggðaráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðinga 2005.
Nú verður haldið austur á land en ráðstefnan verður haldin á Eiðum 3.-5.
júní. Þeir sem vilja halda erindi á ráðstefnunni eru hvattir til að hafa
samband við Kristínu Einarsdóttur (kriste at hi.is) Erindi sem tengjast sögu
og samtíð Austurlands eru sérstaklega vel þegin og auk þess erindi sem
fjalla á einhvern hátt um erlend áhrif á Íslandi en gera má ráð fyrir að
það verði eitt meginþema ráðstefnunnar. Öll boð um erindi verða þó tekin
til mjög vinsamlegrar athugunar.




More information about the Gandur mailing list