[Gandur] Menningararfur, margbreytileiki og alþjóðapólitík

Mannfræðifélag Íslands mi at akademia.is
Wed Sep 8 15:55:05 BST 2004


Hvað: Menningararfur, margbreytileiki og alþjóðapólitík

Hver: Valdimar Tr. Hafstein, þjóðfræðingur

Hvenær: Þriðjudagskvöldið 14. september kl. 20.00
Hvar: ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð

Af hverju: Fyrirlestrarröð Mannfræðifélags Íslands starfsárið 2004-2005 - 
Menning: menningarleg færni, menningarlegir árekstrar


Ágrip:
Samfara ýmsum öðrum -væðingum, hefur undanfarið átt sér stað viðamikil 
menningararfsvæðing sem hefur umbreytt ólíkustu hlutum, atferli og 
ummerkjum fortíðar í menningararf -- hugtak sem hefur rutt sér til rúms á 
tiltölulega skömmum tíma og er aldrei langt undan þegar lýsa á sambandi 
fortíðar við samtímann. Orðræðan um menningararf hefur sterka siðferðilega 
undiröldu, dregur upp dökka mynd af sístækkandi glatkistu og hrópar 
hástöfum á varðveislu (sem alltaf er á elleftu stundu). Í fyrirlestrinum 
verður skoðaður félagslegur veruleiki hugtaksins, vöngum velt yfir þeirri 
orðræðu sem það sprettur úr og kannað hvaða skorður það setur sýn okkar á 
sögu og samtíð. Sérstaklega verður horft til þróunar á vettvangi UNESCO 
(menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna) sem veitir einstaka innsýn í 
pólitískar forsendur menningararfsins, sem og árekstrana, bitbeinin og 
þekkingarframleiðsluna sem honum tengjast.


Fyrirlestrarröðin:
Þetta árið verða á dagskrá Mannfræðifélags Íslands fyrirlestrar sem á einn 
eða annann hátt fjalla um menningu – menningarlega færni og menningarlega 
árekstra hvort heldur heima í héraði, á landsvísu eða hnattrænt (local, 
national, global). Fyrirlestrarnir eru alltaf haldnir í húsakynnum 
ReykjavíkurAkademíunnar á Hringbraut 121 4.hæð, annan þriðjudag hvers 
mánaðar og byrja klukkan 20.00. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn 14. 
september og sá síðasti þann 10. maí 2005.  
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20040908/377b6a60/attachment.html


More information about the Gandur mailing list