<html>
<body>
<div align="center">Hvað: <font size=5 color="#FF0000"><b>Menningararfur,
margbreytileiki og alþjóðapólitík<br><br>
</b></font>Hver: <font size=4><b>Valdimar Tr. Hafstein,
þjóðfræðingur<br><br>
</b></font>Hvenær: <b>Þriðjudagskvöldið 14. september kl. 20.00 <br>
</b>Hvar: <b>ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð<br><br>
</b>Af hverju: <b>Fyrirlestrarröð Mannfræðifélags Íslands starfsárið
2004-2005 - Menning: menningarleg færni, menningarlegir árekstrar
<br><br>
<br>
</div>
Ágrip:<br>
</b>Samfara ýmsum öðrum -væðingum, hefur undanfarið átt sér stað
viðamikil menningararfsvæðing sem hefur umbreytt ólíkustu hlutum, atferli
og ummerkjum fortíðar í menningararf -- hugtak sem hefur rutt sér til
rúms á tiltölulega skömmum tíma og er aldrei langt undan þegar lýsa á
sambandi fortíðar við samtímann. Orðræðan um menningararf hefur sterka
siðferðilega undiröldu, dregur upp dökka mynd af sístækkandi glatkistu og
hrópar hástöfum á varðveislu (sem alltaf er á elleftu stundu). Í
fyrirlestrinum verður skoðaður félagslegur veruleiki hugtaksins, vöngum
velt yfir þeirri orðræðu sem það sprettur úr og kannað hvaða skorður það
setur sýn okkar á sögu og samtíð. Sérstaklega verður horft til þróunar á
vettvangi UNESCO (menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna) sem veitir
einstaka innsýn í pólitískar forsendur menningararfsins, sem og
árekstrana, bitbeinin og þekkingarframleiðsluna sem honum tengjast.
<br><br>
<br>
<b>Fyrirlestrarröðin:<br>
</b>Þetta árið verða á dagskrá Mannfræðifélags Íslands fyrirlestrar sem á
einn eða annann hátt fjalla um menningu – menningarlega færni og
menningarlega árekstra hvort heldur heima í héraði, á landsvísu eða
hnattrænt (local, national, global). Fyrirlestrarnir eru alltaf haldnir í
húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar á Hringbraut 121 4.hæð, annan
þriðjudag hvers mánaðar og byrja klukkan 20.00. Fyrsti fyrirlesturinn
verður haldinn 14. september og sá síðasti þann 10. maí 2005. </body>
</html>