[Gandur] Landsbyggðarráðstefnaá Akureyri

kriste@hi.is kriste@hi.is
Mon, 5 May 2003 15:12:15 -0000 (GMT)


Landsbyggðarráðstefna Félags þjóðfræðinga á Íslandi og
Sagnfræðingafélagsins verður haldin á Akureyri dagana 29 - 31. maí n.k.
Fjöldi fyrirlesara mun flytja erindi, farið verður í skoðunarferðir og
ýmislegt annað gert til skemmtunar og fróðleiks.  Allar upplýsingar um
ráðstefnuna eru að finna á heimasíðu Félags þjóðfræðinga en slóðin er hér
að neðan. Þar sem gisting á Akureyri er ásetin þessa helgi, viljum við
fara þess á leit við tilvonandi ráðstefnugesti að þeir bóki gistingu sem
allra fyrst og eru upplýsingar um gistimöguleika og bókunarleiðir,
sömuleiðis að finna á síðunni.

Kveðjur,
Stjórnin

http://www.akademia.is/thjodfraedingar/akureyri.htm

>