[Folda] Folda Lunch Thursday 12:15

William Moreland wmm2 at hi.is
Wed Oct 30 10:14:15 GMT 2013


Dear All,

Tomorrow lunchtime we will have the joy of listening to Erla Dóra 
talking about her masters project in Eastern Iceland. The talk will be 
in English with an Icelandic slide-show, though many pictures are 
promised! The abstract, in Icelandic, is included below.

The talk will begin at 12:15 in the 3rd floor meeting room and there 
will be cake.

Ágrip:
Jarðgrunnur Breiðuvíkur austan Borgarfjarðar eystri hefur verið 
kortlagður. Rannsóknarsvæðið spannar um  30 km2 og afmarkast af 
Breiðuvík og fjallahring hennar: Sólarfjalli í suðaustri, Hvítserki í 
suðvestri, Bálki í norðvestri og Grenmó í norðaustri. Jarðlögum í 
norðurhlíð víkurinnar hallar inn í dalinn og er hallinn mestur, um 24° 
SV, yst og austast í Grenmó en eilítið norðvestar í Víðidalsfjalli, nær 
hann allt að 33° SV. Sjá má þar í stáli hvernig jarðlögunum byrjar að 
halla eins og um hjarir niður til suðvesturs. Það sama er að segja 
sunnan til á svæðinu, en þar hallar Efrisléttum líkt og um hjörulið 
mislægt undir flikruberg við Herjólfsvíkurvarp um 28° NV. Utar í 
Herjólfsvík hallar jarðlögunum enn frekar, eða um allt að 41° NNV. Frá 
suðvestri hallar ólivínþóleiítlögum um 14° NNA undir Hvítserk. Þennan 
breytileika í jarðlagahalla má skýra með öskjusigi þar sem miðja sigsins 
væri í Breiðuvíkinni sjálfri.
Norðan Herjólfsvíkur, í Sólarfjalli, og allt inn að Hvítafjalli eru 
jarðlög nánast lárétt. Reyndar hallar neðstu lögunum í Sólarfjalli um 
allt að 10° VNV og nokkur óregla er á striki og halla en óreglan eyðist 
um mitt fjallið og hallar jarðlögunum þá einungis um 0-4° VNV. Hér er 
líklegast um að ræða öskjufyllingu en þykk setlög neðst í fjallinu benda 
til þess að nokkur tími hafi liðið milli gosa fyrst eftir að askjan 
myndaðist. Í öskjuna hafa hlaðist upp um 400 m af basískum, ísúrum og 
súrum hraunum. Mjög lítið er um setlög milli þessara hraunlaga, að þeim 
neðstu frátöldum, og bendir það til stöðugrar upphleðslu. Ofan á þessum 
hraunlögum liggur flikrubergslag sem er megin uppistaðan í Hvítserk, 
Leirfjalli og Móhetti, og spannar þykkt þess frá 140 til 300 m. Undir 
því má víða finna steingerða og kolaða viðarbúta sem vitna til um goshlé 
áður en eldský (pyroclastic flow) fór þar yfir. Flikrubergið er 
gegnumskorið af fjölmörgum basaltgöngum og sillum og krýnt basalttúffi 
og móbergi. Askjan hefur því ekki verið barmafull af flikruberginu 
heldur myndast vatn efst í henni. Dýpi öskjunnar sjálfrar hefur því 
verið meira en sem nemur 700 m áður en set, hraunlög og flikruberg 
mynduðu öskjufyllingu.
Áberandi er hraungúllinn Hvítafjall sem líklega hefur verið með fyrstu 
hraununum sem ruddu sér leið til yfirborðs eftir að askjan myndaðist. 
Nokkrar samliggjandi ljósgrýtiseiningar mynda fjallaröðina við Bálk en 
milli þeirra kroppa út basalthraunlög. Hvort þær hafi komið upp á 
sprungu innan öskjunnar sem tengd var ráðandi svæðisbundnu spennusviði í 
jarðskorpunni, frekar en á öskjusprungunni er óljóst, enda hafa þessar 
jarðlagaeiningar mjög ákveðna norðaustlæga stefnu sem er ríkjandi á 
Víknaslóðum. Líklegt má telja að staðbundið spennusvið öskjunnar falli 
að einhverju leyti saman við það svæðisbundna og að norðaustlæg stefna 
öskjusprungunnar vestan Breiðuvíkur stjórnist af hinu síðarnefnda.

See you there!

The Folda Committee
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20131030/448ae4fd/attachment.html 


More information about the Folda mailing list