[Folda] Græn ganga 1. maí kl. 13.

Hrafnhildur Hannesdóttir hrafnha at hi.is
Tue Apr 30 09:42:15 GMT 2013


Kæru Foldufélagar,

Efnt er til grænnar göngu til að hvetja nýkjörið Alþingi til góðra verka 
í umhverfismálum og til að minna á að þingið hefur ekki umboð til að 
framfylgja virkjanastefnu á kostnað náttúrunnar. Á því kjörtímabili sem 
nú er að hefjast verða teknar ákvarðanir um mörg verðmæt náttúrusvæði, 
t.d. Mývatn, Reykjanesskaga og mörg fleiri. Landskipulagsstefna sem 
gerir ráð fyrir háspennulínu og virkjunum á hálendinu mun koma til 
afgreiðslu hjá Alþingi og fyrir liggur krafa um stórar háspennulínur 
m.a. á Reykjanesskaga, í Skagafirði og víðar á Norðurlandi. Krafa grænu 
göngunnar er að náttúru Íslands verði hlíft.

Í nýliðinni kosningabaráttu voru umhverfismál lítið rædd þrátt fyrir að 
skoðanakannanir sýni lítinn stuðning við áframhaldandi uppbyggingu 
virkjana og stóriðju. Þannig reyndust 44% aðspurðra andvíg 
virkjanaframkvæmdum í Bjarnarflagi við Mývatn en 30,5% fylgjandi í 
nýlegri könnun sem Capacent-Gallup gerði fyrir Landvernd. Í sömu könnun 
sögðust 51,3% vera andvíg því að fleiri álver yrðu reist hér á landi en 
30,9% voru því hlynnt.

Eftirfarandi samtök standa að grænu göngunni: Landvernd, Ungir 
umhverfissinnar, Alda - félag um sjálfbærni og lýðræði, 
Náttúruverndarsamtök Íslands, Fuglavernd, Framtíðarlandið, 
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands, Náttúruverndarsamtök Suðurlands, 
Náttúruverndarsamtök Austurlands, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, 
Náttúruvaktin, Sól á Suðurlandi, Eldvötn, Umhverfisvaktin við Hvalfjörð 
og Græna netið.

Fjölmennum í Grænu gönguna,
Hrafnhildur



-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20130430/e6cee4d5/attachment.html 


More information about the Folda mailing list