[Folda] Sumarþing Veðurfræðifélagsins
Veðurfræðifélagið .
vedurfraedifelagid at gmail.com
Fri May 6 11:46:55 GMT 2011
Góðan dag
Veðurfræðifélagið auglýsir sumarþing sitt sem haldið verður mánudaginn
6. júní 2011. Fundur verður settur kl. 13 í Víðgelmi í Orkugarði að
Grensásvegi 9 og slitið kl. 16. Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin
öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.
Hér með er auglýst eftir óskum um erindi á sumarþingið er tengjast
veðri og/eða veðurfari. Erindin verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2
mínútna til spurninga. Senda þarf titil og stuttan útdrátt á
„vedurfraedifelagid hjá gmail.com“.
Bestu kveðjur frá stjórn Veðurfræðifélagsins,
Guðrún Nína, Hálfdán og Sibylle
More information about the Folda
mailing list