[Folda] Þorraþing og aðalfundur Veðurfræðifélagsins

Veðurfræðifélagið . vedurfraedifelagid at gmail.com
Sun Feb 6 23:34:26 GMT 2011


Góðan dag

Veðurfræðifélagið minnir á þorraþing sitt sem haldið verður þriðjudaginn 22.
febrúar 2011.
Fundur verður settur kl. 13 í Víðgelmi í Orkugarði að Grensásvegi 9 og
slitið kl. 16.
Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á  veðri og
veðurfari.

Hér með er auglýst eftir óskum um erindi á þorraþinginu er tengjast veðri
og/eða veðurfari.  Erindin verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til
spurninga.   Senda þarf titil og stuttan útdrátt á "vedurfraedifelagid hjá
gmail.com".

Í framhaldi af þinginu heldur Veðurfræðifélagið aðalfund sinn kl. 16:15 á
sama stað.

Kveðja,
Stjórn Veðurfræðifélagsins
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20110206/a8ee819b/attachment.html 


More information about the Folda mailing list