[Folda] Haustfundur JFÍ - skráningu lýkur þriðjudagskvöld
Ívar Örn Benediktsson
iob2 at hi.is
Mon Nov 22 11:02:30 GMT 2010
Kæru framhaldsnemar
Minni á Haustfund JFÍ sem haldinn verður á föstudaginn kemur til heiðurs
Sigurði Steinþórssyni prófessor sjötugum. Skráningu lýkur á miðnætti í
kvöld. Skráning sendist til Guðrúnar Evu Jóhannsdóttur (
<mailto:gudruneva at mannvit.is> gudruneva at mannvit.is). Sjá nánari upplýsingar
og dagskrá hér að neðan. Kostar aðeins 5000 kr. fyrir stúdenta.
Kveðja, Ívar Örn
----------
cid:image004.png at 01CB8186.0FC1A1E0
Haustráðstefna
Jarðfræðafélags Íslands
26. nóvember 2010
í sal Arion Banka í Borgartúni
Haustráðstefna Jarðfræðafélags Íslands er að þessu sinni haldin til heiðurs
Sigurði Steinþórssyni, prófessors í jarðfræði við Háskóla Íslands, á 70
afmælisári hans.
Um er að ræða heilsdagsráðstefnu sem stendur frá klukkan 9:00 til 17:00 þar
sem fjöldi vísindamanna munu halda fyrirlestra sem á einn eða annan hátt
tengjast rannsóknarstarfi Sigurðar.
Þátttökugjald er 9000 kr. fyrir félagsmenn, 11000 kr. fyrir utanfélagsmenn
og 5000 kr. fyrir stúdenta. Áréttuð er samþykkt aðalfundar sem heimilar þeim
félögum sem eru komnir á eftirlaun að taka þátt á ráðstefnunni án
endurgjalds. Hádegisverður er innifalinn í ráðstefnugjaldinu og eru menn
beðnir um að tilkynna ef þeir ætla ekki í matinn.
Skráning sendist til Guðrúnar Evu Jóhannsdóttur (gudruneva at mannvit.is) fyrir
þriðjudaginn 23. nóvember. Við skráningu þarf að koma fram nafn,
heimilisfang, kennitala, greiðandi og hvort viðkomandi er félagsmaður í
Jarðfræðafélaginu.
Salur Arion Banka er í Borgartúni 19. Gengið er inn aðalmóttökuna
(hringhurð) og að móttökuborði sem þar er. Oftast er einhver þar sem getur
vísað veginn, en ef ekki þá er gengið til hliðar við móttökuborðið að
sófarými og þar er salurinn á vinstri hönd.
Dagskrá Haustráðstefnu JFÍ, 26. nóvember 2010
09:00 09:30 Skráning
Fundarstjóri Guðrún Eva Jóhannsdóttir
09:30 09:40 Setning
Þorsteinn Sæmundsson
09:40 10:00 Sigurður Steinþórsson, ferill, fræði og fleira
Páll Einarsson
10:00 10:20 Stafar endurkastsflötur á um 40 km dýpi undir Íslandi af
fasabreytingum í möttli?
Guðmundur Heiðar Guðfinnsson
10:20 10:40 Útfellingar sem myndast í kjölfar eldgosa á Íslandi
Sveinn Jakobsson & Kristján Jónasson
10:40 11:10 Kaffi
11:10 11:30 Einkenni tvö þúsund metra jarðlagastafla neðan
Vestmannaeyja
Hjalti Franzson
11:30 11:50 Dínamísk kvikublöndun í Eyjafjalljökulsgosinu
Olgeir Sigmarsson
11:50 13:00 Matur
Fundarstjóri Lúðvík Eckardt Gústafsson
13:00 13:20 Oxun bergkviku
Níels Óskarsson
13:20 13:40 Segulsviðsfrávik við Stardal og orsakir þess: yfirlit um
rannsóknir 1968-2010
Leo Kristjánsson
13:40 14:00 Einu sinni var ankaramít
Kristján Geirsson
14:00 14:20 Upphaf gosbeltis
Haukur Jóhannesson
14:20 14:40 Grænavatnsbruni og Laxárhraun yngra
Ármann Höskuldsson
14:40 15:00 Gossaga lesin úr dulmáli gjósku
Bergrún A. Óladóttir
15:00 15:30 Kaffi
15:30 15:50 Eldgos á Reykjanesskaga á 8. og 9. öld
Magnús Á. Sigurgeirsson & Kristján Sæmundsson
15:50 16:10 Súrefnisþrýstingur í háhitapressum
Sigurður Jakobsson
16:10 16:30 Megineldstöðvar - kvikuhólf í skorpu eða
möttulfyrirbrigði?
Karl Grönvold
16:30 16:50 Jarðskorpuhreyfingar og innviði Eyjafjallajökuls
Sigrún Hreinsdóttir
16:50 17:00 Samantekt
Sigmundur Einarsson
17:00 - Móttaka til heiðurs Sigurði
''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''
''''''''''''''''''''''''''''''''''''''
Dr. Ívar Örn Benediktsson
Institute of Earth Sciences
University of Iceland
Askja, Sturlugata 7
IS-101 Reykjavík
Direct: (+354) 525 4305
Mobile: (+354) 861 6224
Personal homepage: www.hi.is/~iob2
''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''''
''''''''''''''''''''''''''''''''''''''
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20101122/2c82ad94/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/png
Size: 6739 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20101122/2c82ad94/attachment-0001.png
-------------- next part --------------
An embedded and charset-unspecified text was scrubbed...
Name: ATT00062.txt
Url: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20101122/2c82ad94/attachment-0001.txt
More information about the Folda
mailing list