[Folda] Þorraþing Veðurfræðifélagsins

Veðurfræðifélagið . vedurfraedifelagid at gmail.com
Mon Jan 4 10:30:27 GMT 2010


Gleðilegt ár!

Veðurfræðifélagið auglýsir þorraþing sitt sem verður haldið
fimmtudaginn 11. febrúar 2010.  Fundur verður settur kl. 13 í Víðgelmi
í Orkugarði að Grensásvegi 9 og slitið kl. 16.  Þingið og
Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.

Hér með er auglýst eftir óskum um erindi á þorraþinginu.  Að þessu
sinni er óskað sérstaklega eftir erindum sem tengja saman jökla og
veður.  Sem fyrr eru þó erindi um önnur viðfangsefni er tengjast veðri
og veðurfari velkomin.  Erindin verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2
mínútna til spurninga.  Senda þarf titil og stuttan útdrátt á
vedurfraedifelagid at gmail.com

Í framhaldi af þinginu heldur Veðurfræðifélagið aðalfund sinn kl.
16:15 á sama stað.

Stjórnin vill nota tækifærið og minna á norræna veðurfræðingaþingið
sem verður að þessu sinni haldið í Helsinki 5.-11. júní 2010.  Sjá
nánar hér: "http://www.fmi.fi/international/nordic_16.html"
<http://www.fmi.fi/international/nordic_16.html>.

Bestu kveðjur,
stjórnin
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20100104/d32aad2f/attachment.html 


More information about the Folda mailing list