[Folda] Aðalfundur Foldu / Folda's Annual Meeting

Helgi Arnar Alfreðsson haa4 at hi.is
Fri May 22 15:57:00 GMT 2009


Sæl öll (english below)

Rétt er að vekja athygli á að aðalfundur félagsins mun fara fram í  
hádeginu, þriðjudaginn 26. maí 2009 í fundarsal Jarðvísindastofnunar,  
3. hæð Öskju.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi (samkvæmt lögum félagsins):

1. Skýrsla stjórnar.
2. Stjórnin leggur fram reikninga félagsins.
3. Umræður um skýrslur og reikninga.
4. Lagabreytingar
5. Kosning stjórnar fyrir næsta starfsár.
6. Hin nýkjörna stjórn tekur formlega við völdum.
7. Skipun skorarfulltrúa. Skulu þeir skipaðir til eins árs.
8. Önnur mál.

Stjórn félagsins vill vekja sérstaka athygli á eftirtöldum málum:
Stjórnarkjör: Ljóst er að töluverð endurnýjun verður í stjórn  
félagsins og því þarf nýtt fólk inn. Helgi Arnar Alfreðsson sem gengt  
hefur formennsku undanfarið ár, gefur ekki kost á sér áfram. Sigurður  
H. Markússon hefur gengt starfi fjármálastjóra en mun hverfa af landi  
brott í haust og gefur því ekki kost á sér áfram. Þorbjörg  
Ágústsdóttir og Sverrir Aðalsteinn Jónsson (ritarar), ásamt Júlíu,  
Eygló og Ívari sjá sér ekki fært að halda áfram heldur. Til að halda  
félaginu á lífi er ljóst að einhverjir þurfa að taka við. Öllum er  
frjálst að bjóða sig fram til setu í stjórn félagsins. Þeir sem gefa  
kost á sér (í hvaða embætti sem er) vinsamlegast tilkynni það stjórn  
fyrir aðalfund eða bjóði sig fram á fundinum.
Lagabreytingar: Skv. lögum félagsins skal kynna tillögur að  
lagabreytingum á póstlista og heimasíðu félagsins eigi síðar en  
tveimur dögum fyrir aðalfund. Þeir sem vilja leggja til breytingar á  
lögum eru því beðnir um að kynna þær með því að senda tölvupóst á  
netfangið folda at listar.hi.is. Allir sem eru á póstlista félagsins geta  
sent á þetta netfang.

Mikilvægt er að fólk mæti. Við minnum á að skv. lögum þarf 1/3 hluti  
félagsmanna að sækja fundinn svo hann sé löglegur.

Við vonumst eftir góðri mætingu.
Stjórn Foldu

---------------

Dear all, Folda's annual meeting will be held at 12.00, Tuesday, 26.  
of May 2009 in the meeting-room on the 3rd floor of Askja.

The program of the annual meeting is as follows:

1. Board's report
2. Cashier's report
3. Discussions about 1 and 2
4. Changes of Folda's law
5. Board election
6. The new board takes over
7. Election of department representative
8. Other issues

The board wants to emphasise the following:
Election: Every Folda-member is welcome to offer oneself as a  
candidate for the board. Helgi (president), Siggi (cashier) and  
Þorbjörg, Sverrir, Júlía, Ívar og Eygló have been on the board since  
last year. They will not continue on the board. Thus, we need new  
people! Those who are interested please inform the Folda board or step  
forward at the meeting. We also want non-Icelanders on the board!

Changes of Folda's law: Folda's law can only be found in Icelandic.  
However, if you have any suggestions of changes, please inform the  
Folda board or send a mail to everyone at folda at listar.hi.is.

It's important that people show up! Hope to see you there.

Folda board
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20090522/931ed942/attachment.html


More information about the Folda mailing list