[Folda] Fundarboð!
thorbag at hi.is
thorbag at hi.is
Fri Nov 21 15:21:31 GMT 2008
Kæru framhaldsnemar,
Nú hafið ÞIÐ tækifæri á að efla framhaldsnám í
jarðvísindum við HÍ.
Folda boðar til fundar næstkomandi mánudag 24. nóvember kl. 12-13 í
fundarsalnum á 3. hæð.
Fundar efni: elfing framhaldsnáms í jarðvísindum við HÍ.
Folda vill gefa framhaldnemum tækifæri á að koma sýnum skoðunum
á famfæri til Jarðvísindastofnunar.
Til þessa fundar er boðað í tengslum við vinnu
Jarðvísindastofnunar við eflingu framhaldsnáms. Fyrsti almenni
fundur þess efnis var haldin í gær, 20. nóvember. Þar var rætt:
1. kostir og gallar styttri (4-5 vikna) námskeiða annars vegar og
námskeið sem ná yfir alla önnina (15 vikur) hins vegar
2. hvers konar námskeið á að kenna? hver eru sérsvið starfsmanna
Jarðvísindstofnunar?
Meðfylgjandi er bréf til þáverandi Raunvísindadeildar frá
Raunveru, hagsmunafélagi nemenda í rauvísindum við HÍ, varðandi
breytingu á kennslumisserum.
Folda hvetur alla framhaldsnema til að mæta og koma með tillögur
um hvað má betur fara í skipulagningu framhaldsnáms og
námsframboðs.
Folda vill biðja fólk að koma undirbúið á fundinn á mánudaginn
og velta fyrir sér þessum sjö punktum:
1. Gera þarf greinarmun á eðli framhaldsnámskeiða á masters- og
doktorsnámsstigi.
2. Um er að ræða 3 mismunandi hópa; íslenskir nemendur skráðir
við HÍ, erlendir nemendur skráðir við HÍ, erlendir nemendur sem
sækja 1 eða fleiri námskeið við HÍ sem hluta af sínu námi við
erlendan háskóla.
3. Kostir styttri námskeiða eru þau að fleiri nemendur víða að
geta sótt námskeiðin og að sama skapi er auðveldara að fá
gestakennara til þátttöku. Það fer eftir eðli náms (30/45
eininga rannsókna mastersnám, eða doktorsnám) hvort stutt
námskeið henta betur en annar-námskeið. Það er ekki bara
námskeiðsinnihald sem skiptir máli heldur en einnig fyrir nemendur
að kynnast hver öðrum (eftir því sem hópurinn er stærri þeim
mun fleiri tengsl geta myndast).
4. Með lengri námskeiðum gefst kostur á úrvinnslu gagna og
nánari samstarfi við samnemendur, kennara og starfslið
stofnunarinnar. o.fl.fl.fl.fl
5. Mikilvægt er að framhaldsnemar dvelji við erlenda
háskólastofnun hluta af námi sínu - á það að vera skylda?
6. Vel mætti hugsa sér þverfaglegt námskeið sem myndu henta
framhaldsnemum í öllum greinum (jarðeðlisfræði, jarðfræði,
jarðefnafræði) er lýtur að greinaskrifum, gagnaúrvinnslu,
tölfræði, o.fl.fl.fl.
7. Sérstaða JHÍ er tilraunastofa íslenskrar náttúru (jöklar,
eldfjöll, flekahreyfingar, jarðhitasvæði, o.fl.). Óhætt er að
segja að sú aðstaða sem við búum við sé ekki að fullu nýtt
við kennslu á grunnstigi, en ef til vill væri hægara um vik að
notfæra sér auðvelt aðgengi að jöklum, eldfjöllum og
jarðhitasvæðum fyrir námskeið á framhaldsstigi. Feltvinna þarf
að gegna veigamiklu hlutverki í námskeiðum á framhaldsstigi.
Ályktun fundar Foldu verður svo afhent jarðvísindadeild.
Fyrir hönd Foldu,
Hrafnhildur Hannesdóttir
Ívar Örn Benediktsson
Þorbjörg Ágústsdóttir
Dear graduate students,
Now you have a chance to influence the strengthening of graduate
studies at the Earth science department of the Univer.
Folda will have a meeting next Monday, November 24. starting at 12,
in the meeting room on 3. floor.
Folda encourages all graduate students to come and give their opinion
on the development of graduate studies at the Earth science department.
The subjects of the meeting are:
1) course length (5 weeks intensive courses or one semester courses)
2) which courses should be taught in relation to the specialities of
the department?
3) our views on graduate studies
The conclusions of the meeting will be given to the commission on
graduate studies of the Earth science department for further
discussions.
on the behalf of Folda,
Hrafnhildur Hannesdóttir
Ívar Örn Benediktsson
Þorbjörg Ágústsdóttir

-------------- next part --------------
Skipped content of type multipart/mixed
More information about the Folda
mailing list