RE: [Folda] sameining nemendafélaga
Rannveig Guicharnaud
rannveig at lbhi.is
Thu Apr 3 19:11:36 GMT 2008
Ooooo. Nú langar mig að halda áfram að skipta mér af, jæja þá fyrst þið endilega viljið.
Ég sé ekki að það sé hlukverk Foldu að virkja áhuga nemenda það verða þeir að finna hjá sjálfum sér. Ef áhuginn er ekki til staðar í grun´nnámi þá er bara að skella sér í annað fag.
Fyrsta árs nemendur geta svo kynnst 2 annars og þriðja árs nemendum með því að mæta á viðburði Fjallsins.
Ég hef ekki orðið vör við að Folda sé ekki "fókuseruð" á jarðvísindi ???????? skil alls ekki þessi rök og nú fylgist ég nú bara með á hliðarlínunni.
R
________________________________
From: folda-bounces at listar.hi.is on behalf of Sigurður H. Markússon
Sent: Thu 3.4.2008 17:56
To: 'Ívar Örn Benediktsson'; 'Björn Oddsson'; 'Helgi Arnar Alfreðsson'
Cc: folda at hi.is
Subject: RE: [Folda] sameining nemendafélaga
Sæl öll,
Ég held að það sé til mikils að vinna með því að stofna eitt öflugt
nemendafélag fyrir alla nemendur hinnar nýju skorar og þá sérstaklega til að
reyna
auka tengsl milli allra nemenda sem stunda nám í jarðvísindum og skapa góðan
hópanda. Einnig tel ég þetta mjög mikilvægt til að virkja áhuga nemenda í
grunnnámi sérstaklega
þar sem mjög neikvæðar breytingar hafa átt sér stað á eftir að flutt var í
Öskju og fólk sem er t,d á fyrsta ári þekkir ekki eldri nemendur og hvað þá
nema í framhaldsnámi. Þarna væri líka hægt að hafa starfsemi félagsins mun
fókusaðri á jarðvísindi og atburði á vegum félagsins mun tíðari. Það verður
nú bara að viðurkennast að oft þegar eitthvað er að gerast á vegum
framhaldsnema hérna þá er mætingin vægast sagt léleg. Aftur á móti er ég
alveg sammála því að nauðsynlegt sé að starfrækt sé hagsmunafélag
framhaldsnema og er ekkert sem segir að slíkt félag geti ekki starfað undir
eða samhliða nýju nemendafélagi.
Nemendur í grunnnámi virðast vera mjög fylgjandi þessu og telja að þetta
myndi verða til góðs fyrir þau. En þetta er nú bara allt í spjall-stiginu
ennþá og gott að sem flestir viðri sínar skoðanir.
Kv, Sigurður Markússon
-----Original Message-----
From: folda-bounces at listar.hi.is [mailto:folda-bounces at listar.hi.is] On
Behalf Of Ívar Örn Benediktsson
Sent: 3. apríl 2008 17:07
To: 'Björn Oddsson'; 'Helgi Arnar Alfreðsson'
Cc: folda at hi.is
Subject: RE: [Folda] sameining nemendafélaga
Halló,
Ég vil byrja á því að lýsa yfir ánægju með þetta fyrsta framtak nýrrar
stjórnar.
Ég vil hins vegar taka undir með Birni Odds! Ég er þeirrar skoðunar að ekki
eigi að sameina félögin, enda eru hagsmunir þeirra mjög mismunandi. Folda er
og á áfram að vera mun faglegra félag heldur en Fjallið, rétt eins og Björn
bendir á. Hagsmunir okkar í Foldu varða miklu meira faglega þætti heldur en
hagsmundir nemenda í grunnnámi (með fullri virðingu fyrir þeim). Má þar
nefna kjaramál, aðstöðumál, öryggismál, aðgang að rannsóknartækjum og
-búnaði, ýmis konar mál er varða framvindu í framhaldsnámi, fjármögnun
framhaldsnáms, fjármögnun rannsókna, kennslumál og margt, margt fleira.
Þetta eru allt önnur mál en grunnnemendur glíma við og allt aðrir hagsmunir
sem þarf að gæta.
Frekara samstarf félaganna er aftur á móti hið besta mál, og sjálfsagt mál
að sameina af og til viðburði félaganna til að efla andann og tengslin.
Kveðja, Ívar Örn
-----Original Message-----
From: folda-bounces at listar.hi.is [mailto:folda-bounces at listar.hi.is] On
Behalf Of Björn Oddsson
Sent: Thursday, April 03, 2008 4:49 PM
To: Helgi Arnar Alfreðsson
Cc: folda at hi.is
Subject: [Folda] sameining nemendafélaga
Sæl
Þar sem ég get ekki þátt í bjórdrykkjunni góðu, þá vil ég leggjast
algjörlega gegn því að nemendafélög framhaldsnema og grunnnema verði sett
undir einn hatt.
Þau starfa algjörlega að mismunandi markmiðum og í raun afskaplega fá
markmið sem félögin geta stefnt að. Folda er og á að vera mun faglegra
nemendafélag heldur en fjallið og aðalmarkmið félagsins var að sameina
framhaldsnema í jarðvísindum sem sitja víða um stofnanir á Íslandi og
erlendis. Það hefur ekki alveg virkað sem skyldi og legg ég til að ný
stjórn Foldu leggi sig frekar fram í þeim málum, heldur en að gera félagið
enn tengdara þeim sem stunda nám í Öskju og hafa áhuga á að drekka bjór.
Hins vegar er sjálfsagt að félögin starfi saman og bakki hvort annað upp þar
sem á við.
kv.
Björn Oddsson
>
> Komi þið sæl, [English below]
>
> Ný stjórn Foldu hefur tekið við störfum og mun fyrsta embættisverk
> hennar vera að halda partí n.k. föstudag. Folda mun bjóða nemendum í
> grunnnámi að vera með og halda fyrir þá smá kynningu á störfum
> nokkurra framhaldsnema hér við stofnunina ásamt því að kynna stofnuna
sjálfa.
> Tilgangurinn að efla tengsl og samvinnu jarðvísindanema á öllum stigum
> námsins. Einnig að hvetja nemendur í grunnnámi til að taka þátt í
> félagsstarfi og atburðum á vegum Foldu sem og ráðstefnum og öðru sem
> tengist jarðvísindum. Boðið verður upp á fljótandi veitingar ásamt
> öðrum veitingum sem eru í boði jarðfræðiskorar. Mikilvægt er að sem
> flestir mæti til að tilgangi samkomunar sé náð.
>
> Ef svo ólíklega vill til að fríu veitingarnar klárist mun bjór verða
> seldur á mjög hagstæðu verði.
>
> Mæting er í Öskju kl: 20.00 á föstudaginn.
>
> Kveðja,
> Stjórn Foldu.
>
> P.s Einnig verða óformlegar umræður yfir bjórdrykkju hvort eigi að
> endurskoða fyrirkomulag núverandi nemendafélaga og stofna nýtt félag
> stúdenta undir hinni nýju Jarðvísindaskor. Þar sem jarðvísindanemendur
> á öllum stigum námsins ásamt stúdentum í námsbrautinni "Jarðvísindi
> fyrir erlenda stúdenta" munu standa að.
>
> --------
>
> Hello everyone,
>
> The new administration of Folda has taken office and the first
> assignment is to throw a party next Friday. Folda will invite the
> undergraduate students in geology to join us. The idea is to introduce
> them to what projects a few of us are working on and give them a short
> presentation of the Institution of Earth Sciences. The goal is to
> extend fellowship and collaboration between us in earth sciences and
> also to encourage them to participate in Folda's events. Folda will
> offer free beer and The Department of Earth Sciences will offer some light
snacks.
>
> If the free beer will dry up, you can buy some more offered in a good
> price.
>
> The meeting will start at 20:00 in Askja next Friday.
>
> Regards,
> The Board of Folda.
>
> P.s. Some informal discussions will be held during the beer drinking
> about the merge of Folda and undergraduate geosciences students to
> form a new student association under the new Department of Earth
> Science, with participation of the "Earth science for foreign students"
program.
>
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
--
Með kveðju,
Björn Oddsson
Physikalisch Vulkanologisches Labor
Institut für Geologie
Pleicherwall 1
D-97070 Würzburg
Germany
Sími:00 354 869 3432
_______________________________________________
Folda mailing list
Folda at listar.hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
_______________________________________________
Folda mailing list
Folda at listar.hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
_______________________________________________
Folda mailing list
Folda at listar.hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20080403/a0364e28/attachment.html
More information about the Folda
mailing list