[Folda] sameining nemendafélaga

Kristín Björg Ólafsdóttir kbo at hi.is
Thu Apr 3 17:41:43 GMT 2008


Sæl öll sömul

Vil bara koma á framfæri að ég er algjörlega sammála síðustu ræðumönnum.

Kv Kristín Björg



Halló líka,
>
>
>
> Þetta mál kemur mér í raun ekki rass í bala við (þar sem ég er í
> doktorsnámi í Skotlandi (í jarðvísindum þó) en ekki við HÍ)  en fyrst ég
> er nú á þessum ágæta póstlista og hef skoðanir á hinu og þessu verð ég
> bara að segja að ég er algjörlega sammála Ívari fyrrverandi bekkjarfélaga
> mínum og Birni Odds.
>
>
>
> Hagsmunir grunnnema og framhaldsnema eru bara alls ekki þeir sömu og
> félagið á að vera á faglegri nótunum.  Hagmunir framhaldsnema snúast m.a.
> fjármögnum rannsókna, aðgang að tækjum, öryggisbúnaði inn á
> rannskónastofum og svo mætti lengi telja eins og Ívar bendir réttilega á.
> Þessir þættir eru bara alls ekki það sem grunnnemar glíma við.  Það að
> drekka saman bjór er gaman og oft á tíðum nauðsynleg iðja en á ekki að
> þurfa að gerast undir merkjum "Foldu".
>
>
>
> Bless í bili
>
>
>
> Rannveig
>
>
> ________________________________
>
> From: folda-bounces at listar.hi.is on behalf of Ívar Örn Benediktsson
> Sent: fim. 3.4.2008 17:06
> To: 'Björn Oddsson'; 'Helgi Arnar Alfreðsson'
> Cc: folda at hi.is
> Subject: RE: [Folda] sameining nemendafélaga
>
>
>
> Halló,
>
> Ég vil byrja á því að lýsa yfir ánægju með þetta fyrsta framtak nýrrar
> stjórnar.
>
> Ég vil hins vegar taka undir með Birni Odds! Ég er þeirrar skoðunar að
> ekki
> eigi að sameina félögin, enda eru hagsmunir þeirra mjög mismunandi. Folda
> er
> og á áfram að vera mun faglegra félag heldur en Fjallið, rétt eins og
> Björn
> bendir á. Hagsmunir okkar í Foldu varða miklu meira faglega þætti heldur
> en
> hagsmundir nemenda í grunnnámi (með fullri virðingu fyrir þeim). Má þar
> nefna kjaramál, aðstöðumál, öryggismál, aðgang að rannsóknartækjum og
> -búnaði, ýmis konar mál er varða framvindu í framhaldsnámi, fjármögnun
> framhaldsnáms, fjármögnun rannsókna, kennslumál og margt, margt fleira.
> Þetta eru allt önnur mál en grunnnemendur glíma við og allt aðrir
> hagsmunir
> sem þarf að gæta.
>
> Frekara samstarf félaganna er aftur á móti hið besta mál, og sjálfsagt mál
> að sameina af og til viðburði félaganna til að efla andann og tengslin.
>
> Kveðja, Ívar Örn
>
> -----Original Message-----
> From: folda-bounces at listar.hi.is [mailto:folda-bounces at listar.hi.is] On
> Behalf Of Björn Oddsson
> Sent: Thursday, April 03, 2008 4:49 PM
> To: Helgi Arnar Alfreðsson
> Cc: folda at hi.is
> Subject: [Folda] sameining nemendafélaga
>
> Sæl
>
> Þar sem ég get ekki þátt í bjórdrykkjunni góðu, þá vil ég leggjast
> algjörlega gegn því að nemendafélög framhaldsnema og grunnnema verði sett
> undir einn hatt.
>
> Þau starfa algjörlega að mismunandi markmiðum og í raun afskaplega fá
> markmið sem félögin geta stefnt að.  Folda er og á að vera mun faglegra
> nemendafélag heldur en fjallið og aðalmarkmið félagsins var að sameina
> framhaldsnema í jarðvísindum sem sitja víða um stofnanir á Íslandi og
> erlendis.  Það hefur ekki alveg virkað sem skyldi og legg ég til að ný
> stjórn Foldu leggi sig frekar fram í þeim málum, heldur en að gera félagið
> enn tengdara þeim sem stunda nám í Öskju og hafa áhuga á að drekka bjór.
>
> Hins vegar er sjálfsagt að félögin starfi saman og bakki hvort annað upp
> þar
> sem á við.
>
> kv.
>
> Björn Oddsson
>
>
>>
>> Komi þið sæl, [English below]
>>
>> Ný stjórn Foldu hefur tekið við störfum og mun fyrsta embættisverk
>> hennar vera að halda partí n.k. föstudag.  Folda mun bjóða nemendum í
>> grunnnámi að vera með og halda fyrir þá smá kynningu á störfum
>> nokkurra framhaldsnema hér við stofnunina ásamt því að kynna stofnuna
> sjálfa.
>> Tilgangurinn að efla tengsl og samvinnu jarðvísindanema á öllum stigum
>> námsins. Einnig að hvetja nemendur í grunnnámi til að taka þátt í
>> félagsstarfi og atburðum á vegum Foldu sem og ráðstefnum og öðru sem
>> tengist jarðvísindum. Boðið verður upp á fljótandi veitingar ásamt
>> öðrum veitingum sem eru í boði jarðfræðiskorar. Mikilvægt  er að sem
>> flestir mæti til að tilgangi samkomunar sé náð.
>>
>> Ef svo ólíklega vill til að fríu veitingarnar klárist mun bjór verða
>> seldur á mjög hagstæðu verði.
>>
>> Mæting er í Öskju kl: 20.00 á föstudaginn.
>>
>> Kveðja,
>> Stjórn Foldu.
>>
>> P.s Einnig verða óformlegar umræður yfir bjórdrykkju hvort eigi að
>> endurskoða fyrirkomulag núverandi nemendafélaga og stofna nýtt félag
>> stúdenta undir hinni nýju Jarðvísindaskor. Þar sem jarðvísindanemendur
>> á öllum stigum námsins ásamt stúdentum í námsbrautinni "Jarðvísindi
>> fyrir erlenda stúdenta" munu standa að.
>>
>> --------
>>
>> Hello everyone,
>>
>> The new administration of Folda has taken office and the first
>> assignment is to throw a party next Friday. Folda will invite the
>> undergraduate students in geology to join us. The idea is to introduce
>> them to what projects a few of us are working on and give them a short
>> presentation of the Institution of Earth Sciences. The goal is to
>> extend fellowship and collaboration between us in earth sciences and
>> also to encourage them to participate in Folda's events. Folda will
>> offer free beer and The Department of Earth Sciences will offer some
>> light
> snacks.
>>
>> If the free beer will dry up, you can buy some more offered in a good
>> price.
>>
>> The meeting will start at 20:00 in Askja next Friday.
>>
>> Regards,
>> The Board of Folda.
>>
>> P.s. Some informal discussions will be held during the beer drinking
>> about the merge of Folda and undergraduate geosciences students to
>> form a new student association under the new Department of Earth
>> Science, with participation of the "Earth science for foreign students"
> program.
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Folda mailing list
>> Folda at listar.hi.is
>> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>>
>
>
> --
> Með kveðju,
>
> Björn Oddsson
> Physikalisch Vulkanologisches Labor
> Institut für Geologie
> Pleicherwall 1
> D-97070 Würzburg
> Germany
>
> Sími:00 354 869 3432
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>




More information about the Folda mailing list